Ægir - 01.11.1999, Blaðsíða 32
Aðalfundur LILJ
Kristján Ragnarsson, formaður LIÚ:
Launakostnaður
útgerðinnar lækki
nn eitia ferðina hafa verið skip-
aðar nefndir til þess að endnr-
skoða lög iitti stjórn fiskveiða. Sitja
nú að störfum tvœr nefndir utn þetta
mál. Önnur rœðir hvort leggja beri
auðlindaskatt á sjávarútveginn og
hitini er œtlað að fiiina sátt utn
stjórmm fiskveiða. Það er nœsta
kindugt að umrœða geti snúist um
sérstaka skattlagningu á sjávanítveg-
inn," sagði Kristján Ragnarsson, for-
maður LÍÚ, í setningarrœðu sinni á
aðalfundi samtakanna fyrr í tnánuð-
inum. Fundurinn var sá 60. í röðinni
ett þann 17. jattúar sl. voru sex ára-
tugir liðnir frá stofndegi LÍÚ.
„Almenningur hefur notið þess
ríkulega að sjávarútveginum hefur
vegnað betur eftir að núverandi fyrir-
komulagi var komið á við stjórn fisk-
veiðanna. Af margvíslegum ástæðum
er afkoma einstakra fyrirtækja þó æði
misjöfn, sem kemur m.a. fram í því að
fyrirtæki sem skipta megin máli í at-
vinnulífi margra byggðarlaga eru rekin
með verulegu tapi ár eftir ár og eru
komin að fótum fram. Viðbótar skatt-
lagning myndi valda gjaldþroti margra
þeirra. Sérstakur skattur á sjávarútveg
er skattur á landsbyggðina og myndi
enn auka á erfiðleika hennar," hélt
Kristján áfram í þeim kafla ræðu sinn-
ar þar sem hann vék að sáttinni í sjáv-
arútvegi.
Komandi kjarasamninga gerði Krist-
ján líka að umtalsefni. Hann sagði út-
vegsmenn leggja alla áherslu á að ná
fram lækkun launakostnaður þegar
fækkað er í áhöfunum skipa í kjölfar
32 ÆGiIR -------------------------
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ.
tæknibreytinga um borð. Til að
mynda sé á sambærilegum nótaskip-
um 9 manns í áhöfn í Noregi en 14-15
hér á landi.
„Okkar áherslur í næstu kjara-
samnigaviðræðum hljóta að vera að
kjarasamningar verði ekki endurnýjað-
ir nema það fáist fram að auknar
tækniframfarir leiði til lækkunar
launakostnaðar, en ekki að hann hald-
ist óbreyttur eins og við gerðum kröfu
um í síðustu samningum," sagði Krist-
ján.
Um Kvótaþing hafði formaður LÍÚ
þau orð að stofnunin mismunaði
mönnum.
„Reynslan hefur sýnt að verð veiði-
heimilda hefur stórhækkað og þingið
gagnast þeim best sem framselja heim-
ildir en kemur þeim í koll sem veiða."
Brosmildir
stjórnendur LÍÚ
Peir eru brosmildir á myndinni
hér að ofan Kristján Ragnarsson og
Friðrik J. Arngrímsson, lögfræðing-
ur, enda gamansemin ekki alltaf
fjarri mönnum á LIU fundum. Um
næstu áramót mun Kristján láta af
starfi framkvæmdastjóra LÍÚ og
tekur Friðrik þá við starfinu. Aðal-
fundur LIU kaus Kristján áfram til
formennsku í samtökunum þannig
að saman munu þessir menn stjórna
LÍÚ frá næstu áramótum.
Umhverfisviðurkenning
til Granda hf.
Umhverfisviðurkenning LÍÚ var
veitt í fyrsta sinn á aðalfundi sam-
takanna. Hana hlaut Grandi hf. og
tekur Brynjólfur Bjarnason, for-
stjóri, við viðurkenningunni á mynd-
inni hér að ofan en það var sjávarút-
vegsráðherra, Árni M. Mathiesen,
sem veitti viðurkenninguna.