Ægir - 01.11.1999, Qupperneq 33
Aðalfundur LIU
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
r r
Samþykkt aðalfundar LIU:
Starfsemi Kvótaþings
verði hætt hið fyrsta
/
T Ttvegsmenn fatiga því að ástand
þorskstofnsins hefnr batnað
undanfarin ár og ótvírœðar vísbend-
ingar eru um að óhœtt verði að auka
veiðar á nœstu árum úr þessutn mik-
ilvæga fiskistofni. Þrátt fyrir jákvœð
áhrif hlýsjávar er það áhyggjuefni
hversu loðnuveiði gekk illa í sumar.
Minnkandi rœkjustofh hefur valdið
miklutn samdrœtti í rœkjuveiðum og
vinnslu. Óviðunandi stofhmasling á
úthafskarfa hefur orðið til þess að
lögð er til tnikil skerðing heildarafla.
Þá veldur mikil skerðing á veiðiheim-
ildum í skarkola miklum erfiðleikum.
Þessar aðstœður í hafinu kalla á að
fyllsta aðhalds sé gœtt í öllum til-
kostnaði við veiðarnar," segir í sam-
þykkt aðalfundar LÍÚ, sem haldinn
var snemma t nóvembermánuði.
í samþykkt fundarins segir að verð
á helstu botnfiskafurðum í mikilvæg-
ustu markaðslöndum íslendinga hafi
lækkað nokkuð undanfarið. Þá hafi
verð á mjöli og lýsi lækkað um meira
en helming á einu ári, þótt nú bendi
margt til þess að botninum sé náð.
Innlent verðlag hafi farið hækkandi og
gæta þurfi þess að verðbólga verði ekki
viðvarandi vandamál að nýju. Verð á
olíu hafi hækkað mikið á árinu eftir að
hafa verið í sögulegu lágmarki um síð-
ustu áramót.
Mikilvægt að ná kjarasamning-
um til langs tíma
„Útvegsmenn telja mikilvægt að sátt
náist við sjómenn í komandi kjara-
samningaviðræðum til langs tíma. Til
þess að svo megi verða þarf að ná sam-
komulagi um að heildarlaunakostnað-
ur útgerðar taki mið af því þegar tekin
er í notkun ný tækni og fækkað er í
áhöfn.
Mikilvægt er að samkeppnisstaða
sjávarútvegsins á erlendum mörkuð-
um verði ekki skert með sérstökum
skatti á útveginn. Auðlindaskattur er
fyrst og fremst landsbyggðarskattur,
þar sem útvegsfyrirtæki eru rekin í
sjávarbyggðum við strendur landsins.
Nú þegar greiðir útgerðin á annan
milljarð króna á ári í sérstök eftirlits-
og þróunargjöld. Frekari álögur á
greinina myndu enn auka á þær fjár-
hagslegu þrengingar sem mörg fyrir-
tæki í greininni eiga við að stríða.
Varað er við þeirri miklu vaxta-
hækkun, sem orðin er hér á landi og
hækkun gengis íslensku krónunar í
kjölfarið gagnvart mikilvægum við-
skiptamyntum. Þessi þróun rýrir sam-
keppnisstöðu atvinnugreinarinnar og
er nú þegar komin að hættumörkum."
Lagt er til að starfsemi Kvótaþings
verði hætt og lög um þessa stofun
verði afnumin strax. Nauðsynlegt er
að kanna, hvort hægt sé að koma
starfsemi Verðlagsstofu skiptaverðs
fyrir með öðrum hætti en á vegum rík-
isins t.d. á vegum samningsaðila
sjálfra. „
Framkvæmdaáætlun
í umhverfismálum
í samþykkt aðalfundar LÍÚ segir að
æskilegt sé að vakta umhverfisáhrif út-
gerðar vegna notkunar eldsneytis,
kælimiðla og smurolíu, sem og með-
ferð sorps
Fulltniar á aðalfutidi LíÚ fylgjast iiteð umrœðutn.
Mcm 33