Ægir - 01.11.1999, Side 34
Kaupendur launa
fyrir gæðafisk
Aðalfundur smábátamanna sam-
þykkti ályktun þar sem skorað er á
alla smábátasjómenn að ísa allan
fisk og koma með hann að landi í
ílátum. Segir í samþykktinni að góð
reynsla hafi verið af að landa fiski
óslægðum með góðri umgengni um
hráefnið og kaupendur séu mjög
ánægðir. Krafist er óbreyttra reglna
um þetta atriði enda launi kaupend-
ur góða meðferð á afla með verð-
hækkunum á gæðafiski. Pess er
krafist af fiskmörkuðum að gæða-
fiskur sé í boði fyrir fiskkaupendur
og honum sé haldið aðgreindum.
Vilja Fiskistofu
út á land
Málefni Fiskistofu koma fyrir í
fundarsamþykkt aðalfundar LS og
vilja smábátamenn að stofnunin
verði flutt út í sjávarútvegsbyggðir
landsins í stað þess að hún sé í
miðborg Reykjavíkur. I sjávarút-
vegsbyggðum landsins eigi Fiski-
stofa mun betur heima en í Reykja-
vík.
í greinargerð með samþykktinni
segir að á undanförnum árurn hafa
umsvif Fiskistofu aukist mjög að
mannafla. í mörgum tilfellum hafi
störf sem tengjast Fiskistofu nú ver-
ið flutt beint úr sjávarútvegsbyggð-
um þar sem þau hafi átt og eigi
heima. Því verði það að teljast eðli-
leg krafa að aðalstöðvar Fiskistofu
verði fluttar nær þeim vettvangi sem
starfssvið hennar beinist að. Hins
vegar megi fallast á að útibú verði
rekið á höfuðborgarsvæðinu.
______________________________
Smábátasjómenn nggandi á aðalfundi LS:
Rekstur hundruða smábáta í
uppnámi að óbreyttum lögum
Til langs tíma hafa smábátaeig-
endur orðið að búa við hverja
skammtímalausnina á fœtur annarri
og undantekningarlaust með þeim
fylgifisk að hluti flotans er skilinn
eftir í algeru uppnámi með öll fram-
tíðaráform. Því verður ekki trúað að
óreyitdu að þetta sé það sem stjórn-
völd óski sér eða telji vœnlegt til
sátta um tilhögun mála. Vegur smá-
bátaútvegsins hefur vissulega aukist
á undanfómutn árum, en gangi nú-
gildandi lög óbreytt eftir dylst engutn
að stór hluti smábátaflotans er svipt-
ur rekstrarlegum forsendum frá og
með 1. september árið 2000," segir í
samþykkt aðalfundar Landssam-
bands smábátaeigenda, sem haldinn
var fyrir skömmu.
í samþykktinni segir að helstu rök
stjórnvalda er þau hafi brugðist við
Smábátasjómenn segjast hafa búið við
hverja skammtímalausnina á fœtur ann-
arri í því útgerðarmynstri sem stjórnvöid
ákveða fyrirþennan hluta skipaflotans.
Aðalfundur
Landssambands
smábátaeigenda
kvótadómi Hæstaréttar, hafi verið að
þeim bæri skylda til að vernda at-
vinnurétt smábátaeigenda. Eina leiðin
til þess væri að breyta lögunum með
þeim hætti sem þau gerðu, þ.e. kvóta-
setja helftina af þeim sem litla eða
enga veiðireynslu hafa og læsa þá sem
eftir standa inni í sóknardagakerfi,
sem í senn bjóði upp á vonlaust rekstr-
arumhverfi og sé stórhættulegt út frá
öryggissjónarmiðum.
Arthur Bogason, formaður LS, segir
að miðað við óbreytt lög verði fótun-
um kippt undan rekstri hundruða smá-
báta í lok næsta sumar og við eigend-
um þeirra blasi vart annað en gjald-
þrotið eitt. Því sé eðlileg sú spurning
sem aðalfundur LS hafi sent stjórn-
völdum þar sem spurt sé í hverju felist
trygging atvinnuréttar smábáta þegar
lögum sé stillt þannig upp að ekkert
blasir við „hinum vernduðu" annað en
rekstrarstöðvun þegar lögin komi til
framkvæmda.
„Með slíkum gjörningum er síst ver-
ið að nálgast sátt um veiðikerfið að
ekki sé minnst á þau gífurlegu verð-
mæti sem fara samtímis forgörðum í
formi verðlausra atvinnutækja, ónýtts
mannafla og mannvirkja. Sú spurning
hlýtur að vakna hvort stjórnvöldum sé
heimilt að breyta þannig leikreglum
að atvinnutæki þeirra sem inn í grein-
ina hafa komið á fullkomlega lögleg-
um forsendum og aðilar fjárfest í með
gildandi lög í huga, verði á svipstundu
verðlaus vegna lagabreytinga," segir í
fundarsamþykkt aðalfundar LS.
34 mm