Ægir - 01.11.1999, Síða 40
/>1V\
REVTINGUR
'V'Tr-
Neysla sjávarfangs
í Bandaríkjunum
Neysla Bandaríkjamanna á sjáv-
arfangi jókst um 3,7% milli áranna
1997 og 1998. Heiidarneysla sjávar-
afurða, innlendra og innfluttra, nam
6,8 kg á mann. Mest var neysla
fersks eða frysts fisks og skelfisks,
en síðan komu niðursuðuvörur,
rækja, eldissteinbítur og saltað,
reykt og þurrkað sjávarfang.
Árið 1998 jókst innflutningur
sjávarafurða til USA urn 7,7% og
nam um 63% af allri neyslu. Út-
flutningur minnkaði hins vegar um
14,3% á sama tíma.
Nýstárlegir
merkimiðar
Fyrirtæki í Danmörku, Salmo
Danica, notar nýja, sænska uppfinn-
ingu til að merkja reyktan lax, sem
það framleiðir. Hér er um að ræða
límmiða sem settur er á umbúðirnar
og sýnir hvort innihaldið er neyslu-
hæft.
Miðinn er „stilltur" á dagafjöld-
ann sem laxinn er hæfur til neyslu
miðað við ákveðið hitastig. Á miðj-
um miðanum er hringlaga flötur,
sem er grænn í byrjun. Þegar laxinn
er orðinn óhæfur til neyslu, annað
hvort vegna aldurs eða of hás hita-
stigs við geymslu, verður litur
hringsins gulur.
Sérstakur hvati í límmiðanum
veldur litarbreytingunni.
(Fiskeritidende)
Flutningaskip knúin
með efnarafal?
Ainálpingi um vistvœnt eldstieyti
8. september s.l. kom fram hjá
Barga Ámasyni prófessor við Háskóla
íslands að Japanir hyggðust byggja
tilraunaskip eftir fimm ár, þ.e. 1500
tonna flutningaskip kmiið 500 kW
metanól efnarafali (Fuel Cell). Að
sögn Braga er japanska verkefnið á
frumstigi en engar tœknilegar hindr-
anir séu fyrir því að knýja skip með
efnarafali þegar heppilegar stœrðir
koma á markað.
„íslenskt vistvænt eldsneyti" var yf-
irskrift málþings Orkustofnunar sem
haldið var 8. september síðastliðinn.
Rástefnan var haldin á Grand Hótel á
vegum IÐNTÆKNISTOFNUNAR, ALT-
ER OG OPET. Tvær síðastnefndu
stofnanirnar hýsir Orkustofnun.
Fjölmargir áhuga- og fagmenn úr
ýmsum greinum sóttu þingið og lætur
nærri að þar hafi verið á milli 40 og 50
manns. Ekki verður rakin hér tæknin
sem notuð er við framleiðslu vetnis,
metans eða etans, en áhugamönnum
bent á bókasafn Orkustofnunar eða
netið (internetið). Mörg fróðleg erindi
vom flutt á þinginu um tæknilega hlið
á framleiðslu vistvæns eldsneytis úr
lífrænum úrgangi s.s lúpinu, sorpi og
frá stóriðju með nýtingu koleinsýrings
eða koltvísýrings til framleiðslu met-
anóls.
í máli Braga Árnasonar kom fram
að samkvæmt tölum frá árinu 1995
eru um 15% af nýtanlegu vatnsafli á
íslandi virkjað, eða um 30 TWh. Hag-
kvæm jarðvarmaorka á landinu er
áætluð 200 TWh á ári og aðeins 1%
þess er virkjað. Orkunotkun íslendinga
er 83PJ (Peta Joule) á ári og skiptist
hlutfallslega eftir orkuflokkum: jarð-
Guðbergur
Rúnarsson
verkfrœðingur
hjá Fiskifélagi íslands
skrifar
Tæknideild Fiskifélags íslands
varmaorka 38,6%, olíur 38,6%, kol
3,6% og vatnsafl 19,2%. Sérstaða ís-
lands er að lítill hluti nýtanlegs jarð-
varma og vatnsafls eru virkjuð, og að
42% orkunnar er innflutt olíuelds-
neyti.
Skipting orkunotkunar eftir flokk-
um er; upphitun 40,3%, iðnaður
26,8%, flutningar 15,8%, fiskveiðar
12,2% og heimilin með 4,9%. Á árinu
2001 hefst tilraunarekstur allt að
þriggja vetnisstrætisvagna frá Daimler-
Benz hér á landi. Þeir eiga að geta
ekið 150 km á einni vetnishleðslu frá
Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi.
Ögmundur Einarsson hjá Sorpu
lagði áherslu á að sorpið væri orkulind
og haugarnir í Álfsnesi framleiddu nú
500 m3/klst af 60% metangasi. Magn-
ið yrði allt að 4500 tonn árið 2012
sem nægir til að knýja 4000 til 5000
bíla. Sorpa hefur stofnað fyrirtæki um
metangasframleiðsluna, Metan hf., til
að standa að nýtingu gassins í stað
þess að brenna því eins og nú er gert.
Markhópar metangassins eru stórir að-
ilar sem reka almenningsvagna, sorp-
bíla eða þjónustu- og sendibíla í þétt-
býli, t.d sveitarfélög og sorpsamlög.
í máli Guðmundar Gunnarssonar
40 mm