Ægir - 01.11.1999, Page 42
Hugsanlegur tímarammi
efnavélanna
Nokkuð ljóst er að efnavélarnar munu
koma á markað í nánustu framtíð.
Tímasetning einstakra útfærslna eru
hins vegar óljósari. Þannig er öruggt
að efnavélavæðing bíla verður á und-
an efnavélavæðingu skipa og ýmsar
aðrar útfærsur sem tengjast öðrum
notum verða á markaði á undan
einkabílnum. Helstu rök fyrir þessari
þróun mála eru að dreifikerfi fyrir
eldsneyti efnavéla er ekki til, og enn er
unnið að því hvernig eigi að geyma
eldsneytið í nægjanlegu magni fyrir
bíla og skip. Þá er verð efnavélanna
enn geysihátt. Almennt er talað um
það að ártölin upp úr 2020 skipti
miklu máli því gamlar og nýjar orku-
spár spái því að þá verði umsnúningur
í olíuvinnslunni til hins verra. Á ráð-
stefnunni kom fram hvernig vænta
má að þróunin verði í stórum drátt-
um, þ.e. fyrir bíla og skip á næstu öld,
en ekki gerð tilraun til að sýna fram-
vindu efnarafalana að örðru leiti. Til
að bæta úr þessu hef ég bætt inn í
tímarammann annarri notkun, - efni
sem er fengið úr ýmsum áttum.
Epiavélin nœstu 5 ár
Tilrauna- og sýniverkefni með bíla og
almenningsfarartæki sem rekið er af
stofnunum og fyrirtækjum í samvinnu
við sveitarfélög eða stjórnvöld.
Stærstu bílaframleiðendurnir koma
fram með sýninga- og tilraunabíla.
Smánotendur 1 kW, þ.e. efnarafalar
fyrir ýmis tæki sem nú nota endur-
hlaðanlegar rafhlöður, t.d. fyrir mynd-
bandsupptökuvélar. Orkustöðvar til
hernaðarnota og neyðarstövar ýmis-
konar.
Efhavélin frá 2005 til 2015
Almenningsbílar, orkustöðvar fyrir
íbúðahús og íbúðarhverfi. Flutninga-
bílar, kafbátar og tilraunir með flutn-
ingaskip.
Efiiavélin 2015 til 2030
Einkabíllinn, flutningar á landi, orku-
ver fyrir iðnað og almenningsveitur.
Kafbátar, herskip, ferjur og einstaka
flutningaskip.
Efiiavélin frá 2030-2050
Aðrir notendur, t.d. skip
Sjá einnig greinina Aflvélin á nœstu
öld - efharafallinn í síðasta tölublaði
Ægis.
Aron ÞH-105 úr lengingu
Togbáturinn Aron ÞH-105
á Húsavík er nýkominn
heim úr lengingu í
Póllandi. Skipið var lengt
um 1,5 metra og kemur
lenging öll aftan við brú.
Settur var toggálgi á skipið
og vindubúnaður endur-
nýjaður.
Aron ÞH var keyptur frá
Svíþjóð fyrir réttu ári og er
í eigu Knairareyrar ehf. á
Húsavík. Skipstjóri er
Stefán Guðmundsson.
42 Msm