Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Page 10

Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Page 10
8 í vændum var, var ráðizt í það að koma upp kvikmyndahúsi, og skyldu tekjurnar af því renna til Sáttmálasjóðs. Þetta tókst með góðviljaðri aðstoð bæjarstjórnar Reykjavíkur, og með því hefur tekizt að bjarga Sáttmálasjóðnum að nokkru leyti. Fyrir ágóðann af kvikmyndahúsinu þau ár, sem það hefur verið starfrækt, var höfuðstóll Sáttmálasjóð í lok síðasta árs orðinn 2 600.000 kr. í stað 1400.000 kr., sem hann myndi hafa verið. ef kvikmyndahússins hefði eigi notið við. Með þessu hefur mikið áunnizt, en þó hefur þessi ágóði eigi getað jafnað upp verðfall sjóðseignarinnar. 2 600.000 kr. eru nú minni f járhæð en 1 milj. var árið 1920. Þegar sýnt var, að Sáttmálasjóði myndu aukast tekjur með rekstri kvikmyndahússins, ákvað háskólaráð að ráðast í það stórvirki að láta gera nákvæma vísindalega orðabók yfir ís- lenzka tungu og láta sjóðinn leggja fram fé til þess verks. Slík orðabók er engin til og hefir aldrei verið, og er það ekki vansalaust fyrir oss. Fyrir vísindin er það mikil vöntun, svo svo merkan sess skipar íslenzkan meðal tungumála þjóðanna. Söfnun efnis í orðabókina og samning hennar síðan er geysi- mikið verk og langvinnt. Þar þarf vinnu margra manna í mörg ár. En einhverntíma verður að byrja á því, og því fyrr sem það er gert og því meira sem að því er unnið, því fyrr verður því lokið. Ég vil geta þess með þökkum, að Alþingi hefur sýnt þann skilning á þessu máli að leggja nokkurt fé til verks- ins. Við skulum vona, að þessir tveir aðilar, Alþingi og há- skólinn, eigi eftir að gefa íslenzku þjóðinni þessa gjöf í sam- einingu, sem fullkomnasta orðabók yfir móðurmál hennar, gjöf, sem verði dýrmætur fjársjóður fyrir íslenzkar menntir og menningu langt í aldir fram. Að orðabókinni hefur verið unnið nokkuð síðan 1944, og á síðastliðnu háskólaári var endanlegu skipulagi komið á þá vinnu. Háskólaráð skipaði nefnd til að hafa yfirumsjón með verkinu, og eiga sæti í henni þeir prófessorarnir dr. Alexander Jóhannesson, dr. Einar Ól. Sveinsson og dr. Þorkell Jóhannes- son. Forstaða verksins hefur verið falin Jakobi Benediktssyni cand. mag., sem áirum saman hefur unnið að orðabókargerð J
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.