Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Qupperneq 68
66
Semjið yfirlit yfir efnahag, gjöld og tekjur, þar sem tekið sé
tillit til eftirfarandi atriða:
1. Af bókfærðu verði fasteigna afskrifist 4%.
2. Af bókfærðu verði véla afskrifist 10%.
3. Af bókfærðu verði áhalda afskrifist 15%.
4. Birgðir af hráefnum nema, við kostnaðarverði, komnar í hús,
25 000 kr., en eftir er að greiða kostnað við heimkeyrslu á
einni vörusendingu, 200 kr.
5. Birgðir af fullunnum afurðum nema, við framleiðsluverði,
23 000 kr.
6. Útistandandi skuldir nema 60 000 kr., en skuldir til lánar-
drottna 25 000 kr. Meðal skuldunauta eru A, B og C. A skuldar
1000 kr., og er sú skuld algjörlega töpuð. B skuldar 1500
kr. og C 2000 kr., og er ekki talið rétt að gera ráð fyrir,
að þeir borgi nema helming skulda sinna.
7. Samkvæmt upplýsingum frá h.f. Y eru 200 stk. af umboðs-
söluvörunum óseld, og er framleiðslukostnaðarverð hvers stykk-
is 20 kr. H.f. Y á að fá 10% sölulaun, og hafa þau ekki verið
bókfærð. Reikningur h.f. Y er meðal skuldunauta.
8. Brunavátryggingariðgjald af fasteigninni er ógreitt, að upp-
hæð 400 kr.
9. Auglýsingar hafa verið greiddar fyrir fram, að upphæð 500 kr.
II. 31. desember 1947 var efnahagsreikningur Verzlunar Jóns Jóns-
sonar & Co., sem hér segir:
Eignir kr. Skuldir kr.
Fasteign . .. . 100.000 Veðskuld 30 000
Áhöld . .. . 20.000 Víxilskuldir 20 000
Vörubirgðir .... 90 000 Lánardrottnar 50 000
Útistand. skuldir 30 000 Höfuðstóll Jóns Jónss. 100 000
Peningar 10.000 Höfuðstóll Sig. Sig. •• 50 000
250 000 250 000
Um áramótin óskar Sigurður að slíta félagsskapnum og fá hluta
sinn greiddan. Þeir meta eignir félagsins og kemur saman um að
telja virði þeirra sem hér segir: Fasteign: 150 000 kr., áhöld 30 000
kr., vörubirgðir 100 000 kr., útistandandi skuldir 25 000 kr., og good-
will áætla þeir 35 000 kr. virði. Þeir ákveða að skipta eign félagsins
umfram höfuðstólana jafnt milli sín.