Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Qupperneq 91
89
Sigurð Skúlason, mag. art., sem hóf til langframa þá auðg-
unaraðferð fyrir Hbs. að fá erlend, nýútkomin rit til ritdæm-
ingar í Samtíðinni, tímariti sínu, og láta þau að því búnu öll
af hendi við safnið.
Til aðstoðar bókaverði var Aðalgeir Kristjánsson, stud. mag.,
röðunarmaður um veturinn og Þórður Jónsson, stud. mag.,
um vorið nokkra hríð, en spjaldskrárritari var Kristján Ró-
bertsson, stud. theol. Frá septemberbyrjun og fram í febrúar
var Ölafur Hjartar, sem þá var nýkominn úr bókavarðarprófi
í University College í London, starfsmaður í þjónustu Háskóla-
bókasafns og skrásetti allar bækur í Atvinnudeild háskólans,
og einnig hjá raforkumálastjóra og veiðimálastjóra, leit eftir
skráning í Veðurstofu Islands og víðar. Átti háskólabókavörður
þátt í verkinu og skráði m. a. samtímis bækur Keldnasafns.
Miðað vai’ við að skapa í framtíðinni öllum vísindaritasöfnum
landsins eina skráningarmiðstöð í nokkrum tengslum við há-
skólann. Stofnanir þær, sem skráð var hjá, greiddu Ölafi dag-
kaup á meðan. En til starfa, sem Ólafur vann þess í milli í
Háskólabókasafni, var eytt þeim sáttmálasjóðsstyrk, sem bóka-
vörður varðveitti síðan haustið 1946. (Árbók 1945/46, bls. 71).
Bókanotkun nam í lestrarsal 12097 bd., en útlán uxu upp í
2602 bd.
Flokkaskipting salslána: blöð og rit almenns efnis 1111.
handrit, eftirmyndir og fágæt rit (Dewey 090) 1126, heim-
speki 129, trúarbrögð 664, lögfræði og félagsfræði 958, skóla-
mál, venjur og þjóðsagnir 671, málfræði 840, náttúrufræði 719,
verkleg fræði 167, læknisfræði 1158, listir 54, leiklist, leikir
og íþróttir (Dewey 790) 61, bókmenntasaga 710, íslenzkar
bókmenntir 1803, aðrar bókmenntir 966, sagnfræði 626, landa-
fræði 100, ævisögur 234 bd.
Flokkaskipting útlána: blöð og rit almenns efnis 169,
fágæt rit 16, heimspeki 42, trúarbrögð 426, lögfræði og félags-
fræði 177, skólamál og þjóðsagnir 131, málfræði 165, náttúru-
fræði 49, verkleg fræði 30, læknisfræði 250, listir 5, leiklist
og íþróttir 4, bókmenntasaga 63, íslenzkar bókmenntir 590,
aðrar bókmenntir 81, sagnfræði 224, landafræði 23, ævisögur 57.
12