Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Side 115
113
Þá hefur rektor tjáð sig mjög fúsan að greiða fyrir á alla lund,
að bókasölu yrði komið á fót á vegum stúdentaráðs, og myndi hún
geta orðið til húsa í skrifstofuherbergi upplýsingaskrifstofunnar.
Þar eð þetta mál bar svo síð á góma, eða þessi lausn þess, að allar
framkvæmdir myndu falla á næsta stúdentaráð, þá þótti fráfarandi
ráði einnig réttara að það gengi frekara frá málinu og skipaði því
að sínum óskum frá byrjun.
Útgáfustarfsemi.
1. Blaðaútgáfan. Stúdentaráð og Stúdentafélag Reykjavíkur hafa
að undanförnu gefið tímaritið Garð út sameiginlega. Á útgáfu þeirri
hefur orðið allverulegur halli, enda kaupendur mjög fáir, en tapið
hefur að öllu leyti lent á stúdentaráði, þar eð Stúdentafélag Reykja-
víkur hefur ekki verið fært um að standa við sinn hlut af skuldbind-
ingunum vegna blaðsins og hefur ekki enn greitt stofnframlagið.
Auk þess hefur blaðið alls ekki gefið þá raun, sem vonir stóðu
til í fyrstu. Það hefur alla tíð verið bragðdauft og enginn stúdenta-
bragur á því.
Með tilliti til þessa taps og óánægju með blaðið, ákvað stúdenta-
ráð, að nokkru í samræmi við tillögur, sem því höfðu borizt frá
„Mími,“ félagi íslenzkunema, að breyta til um útgáfuna, en fela
þó kjörinni ritnefnd að annast hana, að nokkru að eigin geðþótta,
en láta reynsluna að öðru leyti skera úr, á hvern hátt heppilegast
verði að koma blaðaútgáfunni fyrir í framtíðinni.
Ritnefnd skipa: Ámi Gunnlaugsson stud. jur., Guðlaugur Þor-
valdsson stud oecon. og Gunnar Finnbogason stud. mag.
Samkvæmt því hafa verið gefin út 2 tölublöð af Stúdentablaðinu,
og fyrirhugað er að 1. desemberblaðið skuli vera hátíðarútgáfa
blaðsins en ekki sérstakt blað.
Þá var og samþykkt á fundi stúdentaráðs, 2. júní s. 1., að hver stú-
dent skyldi árlega greiða kr. 10.00 við móttöku stúdentaskírteinis
eða áritun, og skuli gjald þetta renna til útgáfu blaðsins, en stú-
dentinn um leið skoðaður kaupandi þess.
2. Þá var samið við Nemendasamband Menntaskólans í Reykja-
vík, að minningarrit 100 ára afmælis skólans yrði sent fyrrverandi
áskrifendum tímaritsins „Garðs,“ gegn því að stúdentaráð fengi
mann til þess að annast útgáfuna að nokkru.
Stúdentaráð valdi til þessa starfa Friðrik Sigurbjömsson stud. jur.
Rit þetta er ekki komið út ennþá, en er væntanlegt nú á næstunni.
Þá var áskrifendum tímaritsins „Garðs" einnig sent eintak af 1.
des.-blaðinu endurgjaldslaust.
3. Handbókin. Þeir tveir menn, sem fyrrverandi stúdentaráð skip-
15