Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Síða 117
115
hlutunum, og skriflegar kosningar myndu vægast sagt hafa orðið
mjög erfiðar um slíkan fjölda af tillögum og miklu fleiri breyt-
ingartillögur.
Var því ákveðið að reyna að ná aðstandendum frumvarpanna
og breytingartillagnanna saman á fund, ef hægt væri að sameina
það að einhverju leyti og greiða þar með úr mestu flækjunni. En það
tókst því miður ekki, svo að ekki var heldur hægt að fá lagaða ýmsa
vankanta á frumvörpunum, sem nefnd innan stúdentaráðs fann við
nákvæma rannsókn á þeim.
Þegar í slíkt öngþveiti var komið og sýnt var, að ekki yrði á þessu
ári mögulegt að efna til kosninga um lagabreytingarnar, þá ákvað
stúdentaráð að setja kjörstjórn ákveðnar starfsreglur, sem að
mestu byggjast á venju undanfarinna ára, en gætu þó kannske orðið
til þess að fyrirbyggja árekstra eins og þá, sem urðu að afstöðn-
um kosningum síðast.
Utanríkismál.
Snar þáttur í starfsemi stúdentaráðs á þessu starfsári hefur verið
skipti þess við erlend stúdentasamtök. Má segja, að þessi þáttur
í starfseminni hafi vaxið ár frá ári frá því er styrjöldinni lauk.
Hefur að vissu leyti verið erfiðleikum bundið að halda uppi slíkum
skiptum, svo vel sé, fyrir stúdentaráð, þar sem það hefur ekki haft
neinn fastan starfsmann, en flest erlend stúdentasamtök hafa stór-
ar skrifstofur með fjölda starfsmanna, enda er fjárhagsgrundvöllur
þeirra öruggur. Samt sem áður hefur stúdentaráð leitazt við að
sinna málum þessum eftir aðstæðum.
Skal nú fyrst getið þeirra tilvika, er fultrúar ráðsins hafa mætt
á stúdentasamkomum erlendis.
1. Hjörleifur Sigurðsson, stud. polyt., mætti á árshátíð sænska
stúdentasambandsins í Helsingfors 24. nóv. 1947.
2. Geir Kristjánsson, stud. phil., mætti sem fulltrúi ráðsins á
árshátíð stúdentasambandsins í Ábo 18. febr. s. 1.
3. Kristinn Björnsson, stud. psychol., tók sæti f. h. stúdentaráðs,
í norrænni sálfræðinemanefnd, sem vann úr samþykktum frá sál-
fræðingamótinu sumarið 1947.
4. Ólafur Jónsson, stúdent, mætti á Valborgarmessuhátíð Hand-
elshögskólans í Stokkhólmi 30. apríl s. 1.
5. Stúdentaráðið við háskólann í Helsingfors bauð tveimur ís-
lenzkum stúdentum til dvalar í 1 y2 mánuð í Finnlandi og lagði fram
45.000 finnsk mörk í þeim tilgangi. Stúdentaráð þá þetta höfðing-
lega boð Finnanna með því að senda þangað þrjá stúdenta, enda
hafði ráðið samið við finnska stúdentaráðið um að auka fulltrúa-