Árbók Háskóla Íslands

Árgangur

Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Síða 118

Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Síða 118
116 fjöldann en stytta verutímann. Til Finnlands fóru þeir stud. mag. Ásgeir Magnússon, stud. jur. Jón Skaftason og stud. med. Loftur Guðbjartsson. Fóru þeir héðan síðast í apríl, en komu heim í júní- byrjun. Létu þeir hið bezta yfir förinni og rómuðu mjög móttökur finnsku stúdentanna. Væntanlega verður ferðasaga þeirra birt í Stúdentablaðinu. Stúdentaráð styrkti alla þessa menn til fararinnar. 6. Mikilvægasta utanríkismálið, sem stúdentaráð hefur fjallað um, er þátttaka þess í norræna stúdentaþinginu í Osló 22. —28. júní s. 1. Þing þetta var haldið með svipuðu sniði og stúdentaþingið í Aar- hus 1946, þar sem norrænir stúdentar ræða ýmis hagsmuna- og áhugamál sín, svo sem fjárhagsmál, húsnæðismál, skipulagsmál o. fl. Er það mál allra, sem átt hafa kost þess að kynna sér störf þessa þings, að það hafi verið hið merkilegasta og mikils árangurs megi af því vænta. Það er skoðun mín, að íslenzk stúdentasamtök eigi fyrst og fremst að tryggja góða og gagnkvæma samvinnu við „collegana" á Norð- urlöndum. Þar eru hin „academisku“ sjónarmið vafalaust líkust og hérlendis. Af hálfu stúdentaráðs tóku þátt í þingi þessu fimm fulltrúar þ. e. þrír sérlega sendir fulltrúar til þingsins, þau Elín Pálmadóttir, Hjálmar Ólafsson og Jónas Gíslason. Valgarð Briem, stud. jur., dvaldi í Noregi um þingtímann og mætti til þingsins og var jafn- framt formaður íslenzku sendinefndarinnar. Hreinn Benediktsson, stud. philol., sem dvelur við nám í Osló, tók einnig sæti sem ís- lenzkur þingfulltrúi. Norska stúdentasambandið mun hafa lagt sérstaklega mikla vinnu í undirbúning þingsins, og þingið er sagt hafa farið fram með þeim hætti, að sambandinu var að hinn mesti sómi. Stúdentaráð hefur einnig stuðlað að mætti að því, að fulltrúar einstakra háskóladeilda gætu tekið þátt í erlendum stúdentamótum. Það veitti „Orator,“ félagi laganema, styrk til fulltrúasendingar til Noregs í sambandi við 40 ára afmæli norska laganemafélagsins. Fulltrúi „Orators,“ stud. jur. Valgarð Briem, var einnig skiptistú- dent og er nú hingað kominn norskur lagastúdent, frk. Elisabet Sweigaard, sem mun dvelja hérlendis um nokkurt skeið. Félag læknanema sendi tvo fulltrúa til alþjóðamóts læknanema, sem haldið var í Bretlandi í sumar. Stúdentaráð styrkti félagið til fulltrúasendingarinnar. í mótinu tóku þátt þær Þorbjörg Magnús- dóttir og Lilja Petersen. Stúdentaráð hefur aldrei verið aðili að alþjóðsambandi stúdenta. Það átti einungis áheyrnarfulltrúa á stofnþingi þess, en hefur hins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Árbók Háskóla Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.