Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Side 12

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Side 12
10 Með þessum atburðum var bundinn endi á deilur þær, sem staðið höfðu um hríð, milli kaþólsks og lúthersks siðar á Is- landi. Leiðtogar annarrar fylkingarinnar voru á einum gráum haustmorgni numdir úr leiknum með fáeinum höggum af öxi böðulsins, og sigurvegararnir stóðu eftir. Allt landið hafði leikið á reiðiskjálfi af átökunum; nú kom friðurinn, en það var raunar friður kirkjugarðsins. Hann var endanlega stað- festur með Oddeyrardómi vorið eftir; þá var víg þeirra feðga löghelgað. öxarhöggin í Skálholti mörkuðu ekki aðeins endalok deilu út af trúfræðilegum efnum, heldur þáttaskil í lífi heillar þjóð- ar, veigamikla breytingu á öllum högum hennar og háttum. öll þáttaskil í sögu Islendinga hafa orðið, þegar rákust á eða mættust einhver útlend, stundum alþjóðleg áhrif, og hin eðli- lega lífshvöt og frelsisþrá þessarar litlu þjóðar. Þetta mætti rekja frá upphafi og fram til þessa, en hér eru aðeins til um- ræðu þáttaskilin 1550. Hin kaþólska miðaldakirkja var alþjóð- leg, með miðdepli sínum suður í Róm. Áhrif hennar á menn- ingu Islendinga urðu mikil og djúptæk, og margvíslegir árekstr- ar urðu milli kirkjuvalds og innlends valds. En þegar hér var komið sögu, var komin á nokkuð föst skipun og jafnvægi. Það er merkast í þessu máli, að þó að kirkjan yrði hin mesta stóreignastofnun, hélzt þó það fé innan lands og kom lands- mönnum sjálfum að gagni. Siðaskiptahreyfingu Lúthers kynnumst við Islendingar frá hinni verstu hlið. Rán kirkna og klaustra ruglast hér saman við sáluhjálp manna á mjög óskemmtilegan hátt, og kóngur vor kemur út úr siðaskiptunum sem eigandi vel svo fimmtungs jarðeigna landsins, og allur arður af þeim fer út úr landinu. Sundurleitui’ var sá flokkur, sem fylgdi konungi að málum; sumir voru það, sem leituðu sér þar trausts eða frama, hvað sem nú föðurlandi þeirra liði; hins vegar voru hinir lúthersku trúmenn, sem flestir hverjir sáu ekkert nema hina hreinu kenn- ingu; sumir þeirra kunna þó að hafa séð missmíði á hinni nýju skipan, síðar, of seint. Það, sem gefur andstöðimni við lútherskuna hér á landi sér-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.