Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Page 17
15
prófessorar voru þessir: Jón Helgason og Haraldur Níelsson í
guðfræði; Lárus H. Bjamason, Einar Arnórsson og Jón Krist-
jánsson í lögfræði; Guðmundur Magnússon og Guðmundur
Hannesson í læknisfræði; Bjöm M. Ólsen í íslenzkri málfræði
og menningarsögu og Ágúst H. Bjarnason í heimspeki. Dósentar
vora þessir: Sigurður P. Sívertsen í guðfræði og Jón Jónsson
í sögu íslands. Aukakennarar voru í læknadeild: Andrés Fjeld-
sted, Ásgeir Torfason, Jón Hj. Sigurðsson, Ólafur Þorsteinsson,
Sæmimdur Bjamhéðinsson, Vilhelm Bernhöft, Þórður Sveins-
son. Þessir veittu kennslu sem prívatdósentar: Guðmundur
Bjömsson í læknisfræði, André Courmont í frönsku, Helgi
Jónsson í jurtafræði. Af þeim mönnum, sem nú vora nefndir,
era á lífi: Einar Arnórsson, Ágúst H. Bjarnason, Jón Hj. Sig-
urðsson, Ólafur Þorsteinsson. Til allra þessara manna snýst
hugur vor með virðingu og þakklæti.
Það skipulag, sem í öndverðu var á komið, hefur síðan hald-
izt, þó að háskólinn hafi aukizt og eflzt. Árið 1941 var komið
á kennslu í viðskiptafræðum með tveimur föstum kennara-
stólum, og var þá lagadeild breytt í laga- og hagfræðideild.
Árið 1940 var sett á stofn verkfræðideild með þremur föstum
kennarastólum, og hefur hún haft kennslu svarandi til fyrra
hluta í verkfræði við Norðurlandaháskóla.
Kennaralið hefur aukizt svo sem hér segir. Á þessari stundu
era fjórir prófessorar, sem kennslu hafa á hendi í guðfræðis-
deild, 3 í lögfræði og 2 í viðskiptafræðum, 6 í læknadeild, 7
í heimspekisdeild, 3 í verkfræðisdeild. Auk þess er að sjálf-
sögðu eins og áður allmargt aukakennara, og þykir mér þar
sérstök ástæða að nefna sendikennara frá öðrum þjóðum. 1
vetur hafa verið sendikennarar frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð
og Frakklandi.
Fyrsta veturinn vora nemendur 45, síðastliðinn vetur vora
þeir 600. Síðasta tala í innritunarskrá er 2406, en þess ber
að gæta, að þó nokkrir menn era innritaðir oftar en einu sinni,
svo að tala innritaðra stúdenta frá upphafi er nokkru lægri.
Fullnaðarprófi frá háskólanum hafa lokið 909 kandídatar.
Þegar háskólinn var stofnaður, var honum ætlað húsnæði í