Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Page 23

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Page 23
21 un kennarastóla í íslenzku, styrki handa erlendum stúdentum til að nema hér íslenzku og fjárveitingar til sumarnámskeiða í íslenzku. öll mannaverk eru ófullkomin, og svo er um það, hversu kennurum skólans kann að hafa tekizt að rækja það hlutverk, sem þeim var ætlað, en um það efni, hvað kann að hafa mis- tekizt og hvað vel tekizt, um það get ég að sjálfsögðu ekki rætt. Mörgu sinni verður maður, sem við vísindi fæst, að hugga sig eftir langt erfiði við orð Hórazar: „Est quadam pro- dire tenus si non datur ultra“, og hve oft verður hann að láta sér nægja, að það sem hefur áunnizt, þetta „quadam tenus“ sé undurlítið. En hann veit, að hann er ekki einn; aðrir menn, ef til vill á öðrum stöðum og öðrum tíma, eiga ef til vill eftir að bæta enn svolitlum spöl við hans litla spöl. En jafnvel þó að enginn viti um verk hans, þá er sú trú mín, að verkið hafi með nokkru móti tilvist um aldur og ævi, lifi með nokkru móti og sé ekki kastað á glæ, það er sökum hins siðferðilega innihalds þess. Ég trúi á „det frelsens fnugg mandeviljens quantum satis“, sem Ibsen talar um, hinn heila hug til sann- leikans. Háskóli Islands er barn þessa lands og þessarar þjóðar, á að vera það og vill vera það. Mundi hann þá reyna að vera sjálfum sér nógur? Því fer fjarri. öll vísindi eru alþjóðleg, eða eins og ég vildi heldur segja: mannleg, sammannleg, þó að þau 'sjúgi sér magn úr lífi hinna mörgu þjóða. Háskóli Islands hefur verið bundinn bræðraböndum öðrum háskólum, einkum í hinum nálægari löndum, í Evrópu og Norður-Ame- ríku. Kostað hefur verið kapps um að bjóða hingað til lands erlendum vísindamönnum, svo og hafa ýmsir íslenzkir vísinda- menn flutt fyrirlestra við erlenda háskóla. Við höfðum ekki búizt við neinum sérstökum heillaóskum á þessu afmæli, sem haldið er alveg viðhafnarlaust og án þess að bjóða fulltrúum frá bræðraháskólum, en þó hafa borizt heillaóskir úr ýmsum áttum. Skal ég þar nefna fyrst háskól- ann í Osló, og má geta þess um leið, að þessi sami háskóli frændþjóðarinnar austan hafs sendi Háskóla Islands einn há-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.