Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Page 119

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Page 119
117 Björnsson prédikaði. Kl. 1,30 hófst hópganga frá háskólanum að alþingishúsinu, og af svölum alþingis flutti Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra ræðu. Kl. 4 hófst hátíðarsamkoma í hátíðasal há- skólans. Þar fluttu ræður próf. Ólafur Jóhannesson og Ásgeir Ás- geirsson alþm., Rögnvaldur Sigurjónsson lék einleik á píanó og Einar Sturluson söng einsöng. Um kvöldið var síðan hóf að Hótel Borg. Þar flutti próf. Guðbrandur Jónsson ræðu, Kristján Kristjánsson söng einsöng, Lárus Pálsson las upp og Ásgeir Beinteinsson stud. phil. lék á píanó. Að lokum var stiginn dans. Fóru hátíðahöldin öll mjög vel og virðulega fram. b) Blöð og merki voru seld á götum bæjarins 1. des., og hafði stúdentaráð samþykkt, að allur ágóði, ef einhver yrði, skyldi renna sem stofnfé í félagsheimilissjóð. Með það fyrir augum gerði stúd- entaráð ítrekaðar tilraunir til þess að fá stúdentana sjálfa til að selja blöðin og merkin. Undirtektir stúdenta „voru svo góðar“, að við þessum tilmælum urðu fjórir stúdentar, og afleiðingin varð óhjá- kvæmilega sú, að tapið varð jafnmikið í hundruðum og ágóðinn hefði getað orðið í þúsundum króna. Fyrir sérstakan dugnað ritnefndar- inna varð hallinn þó aðeins þriðjúngur þess, sem verið hefur tvö undanfarin ár, eða um 1600 krónur. Formaður ritnefndarinnar var Þórður B. Sigurðsson stud. jur. c) í fórum Stúdentaráðs er bók ein mikil, er „Selskinna" nefnist. Var hún á sínum tíma notuð til fjáröflunar fyrir stúdentagarðana. Rita menn nafn sitt í bókina og leggja fram fé nokkurt, eftir því, hve þeir meta nafn sitt og málefni mikils. Var þessi bók látin liggja frammi, bæði í anddyri háskólans og að Hótel Borg, til þess að safna í félagsheimilissjóðinn. Safnaðist þannig um 700 kr. Áramótafagnaður. í leit sinni að hentugu húsnæði fyrir áramóta- fagnað fór stúdentaráð víðast bónleitt til búðar. Var á tímabili dá- lítil von með húsnæði í þjóðminjasafnsbyggingunni, en þegar til átti að taka, brást það. Að lokum var ekki í annað hús að venda en Breiðfirðingabúð, og þar var áramótafagnaðurinn haldinn. Þar flutti Hannes Guðmundsson stud. theol. áramótaávarp. Eftir öllum að- stæðum þótti fagriaðurinn takast vel, og skemmtu menn sér lengi nætur. Kvöldvökur voru haldnar 17. des. í Tjarnarcafé og 11. marz í Sjálfstæðishúsinu og síðasta vetrardag ásamt Stúdentafélagi Reykja- víkur að Hótel Borg. Skemmtu eingöngu stúdentar á þessum kvöld- vökum með söng, leik, upplestri o. fl. Voru þær allar mjög f jöl- mennar og mæltust mætavel fyrir. Síðasta vetrardag sá stúdenta- ráð enn fremur um kvöldvöku í ríkisútvarpinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.