Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1984, Side 86

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1984, Side 86
84 Árbók Háskóla íslands Sigurður fæddist að Hofi í Vopnafirði 8. janúar 1912. Föðurleggur ættar hans hafði flæmst þangað úr Jökuldal undan Öskju- gosinu 1875, árið sem faðir hans fæddist, og meginþráður í lífsstarfi Sigurðar varð barátta íslendinga við eld og ís í 1100 ár. Að loknu stúdentsprófi á Akureyri 1931 var hann einn vetur við háskólann í Kaupmannahöfn, en fluttist síðan til Stokkhólms, þar sem þá var mikil Mekka landmótunar- og kvarterjarðfræði. Þaðan lauk hann fil. lic. prófi 1939, og fjallaði prófritgerðin um jöklafræðileg efni. Sumarið 1934 kom hann heim til að kanna afleiðingar Grímsvatnagoss og Skeiðarárhlaups það vor og byrjaði þá jafnframt að kanna gjóskulög í jarðvegi með það fyrir augum að rekja gróðursögu landsins með hjálp þeirra. Þar með var ráðin rannsóknastefna hans, því gjósku- lagarannsóknir stundaði hann æ síðan, og naut sín þar vel fjölhæfni hans og víðtæk menntun, en gjóskulagarannsóknir snerta margar greinar: eldQallafræði, fornleifa- fræði, loftslagsfræði, gróðurfarssögu og jafnvel jöklafræði. Með hjálp gjóskulaga las Sigurður úr mómýrum sögu jarðvegs- eyðingar á Islandi, sem hann rakti til versnandi veðurfars, eldgosa og mannvist- ar. Hann var í hópi fyrstu náttúruverndar- manna vorra. Þegar Dalvíkur-jarðskjálftinn reið yfir 1934 vildi svo til að Sigurður var staddur á Akureyri. Var hann fljótur til að kanna afleiðingar hans og ritaði um skjálftann sína fyrstu fræðiritgerð, Das Dalvik- Beben in Nordisland (1937). Sumurin 1936—38 tók hann þátt í Vatnajökulsleið- öngrum þeirra Jóns Eyþórssonar og Ahl- manns og skrifaði um merka ritgerð, Present glacier shrinkage and eustatic changes of sea-level (1940). Þá tók hann þátt í samnorrænum fornleifagrefti að Stöng í Þjórsárdal sumarið 1939 þar sem aldursgreining með gjóskulögum var not- uð í fyrsta sinn, en Heklugos 1104 eyddi landnámsbyggðum Þjórsárdals. Þær rann- sóknir urðu uppistaða doktorsritgerðar hans frá Stokkhólmi, Tefrokronologiska studier pá Island. Þjórsárdalur och dess förödelse (1944), og mörkuðu jafnframt upphaf viðskipta hans við Heklu. Þau skipti áttu eftir að endast næstu 40 árin. 1 doktorsritgerðinni notaði Sigurður orðin tephra og tephrochronologia fyrir eld- fjallaösku og öskulagatímatal og hafði úr Meteorologica Aristótelesar. Þau eru nú alþjóðleg fræðiorð enda Sigurður faðir gjóskulagafræðinnar. Á Svíþjóðarárum sínum, svo sem jafn- an, kom Sigurður víða við og tengdist vin- áttuböndum ýmsum helstu andans mönn- um þar í landi. Hann skrifaði talsvert í sænsku blöðin um ýmis efni, stjómmál, bókmenntir og stöðu íslands í heimsstyrj- öldinni, auk þess ferðasögur o. fl. Sömu- leiðis gerðist hann handgenginn Bellman og sænskri þjóðlagamenningu, sem hann flutti með sér heim svo sem alkunnugt er. Sigurður kom heim undir lok stríðsins og tók skömmu seinna við stöðu forstöðu- manns jarðfræðideildar Náttúrugripa- safnsins (1947). Háskólaárið 1950 —51 var hann settur prófessor við Stokkhólmshá- skóla með tilboði um að ílendast en kaus að hverfa aftur til starfa heima. 1968 var hann skipaður prófessor í jarð- og landa- fræði við nýstofnaða verkfræði- og raun- vísindadeild Háskóla íslands. Skömmu eftir heimkomu Sigurðar gaus Hekla eftir aldarlangt hlé. Nú voru íslend- ingar í fyrsta sinn færir um kerfisbundnar og umfangsmiklar rannsóknir á eldgosi, og var Sigurður mjög virkur í þeim; hann skrifaði þrjú bindi safnritsins um Heklu- elda 1947—48, þ. á m. grundvallarritið The Eruptions of Hekla in Historical times. A Tephrochronological Study (1967). Hann rannsakaði einnig og skrifaði um gossögu Kverkljalla (1950), Öræfajök- uls (1958), Grímsvatna (1974) og Kötlu (1975). Jafnframt var hann viðriðinn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.