Búnaðarrit - 01.01.1900, Síða 12
12
ér á milli ber; að hverju búnu með reikninginn er far-
ið, sem áður er sagt.
§ 14.
Fulltrúarnir eru fjelagsstjórnarinnar aðstoðarmenn
í öllu því, sem miðar til fjelagsins augnamiðs fram-
kvæmdar, sjer í lagi í því hjeraði hvar þeir valdireru.
Þeir taka á móti þeim tillögum, sem íjelaginu gjald-
ast á þá, og krofja þess, sem eigi er að rjettum gjald-
daga lokið, eptir ávísun aukaforseta. Þá er og ætlazt
til, að þeir hver í sínu hjeraði líti sjálfir eptir og full-
vissi sig um, að verk þau, fyrir hver launa er beiðzt
af fjelaginu, sjeu svo af hendi leyst, sem frá er skýrt
af þeim, sem verðlaunanna beiðast, og skal vitnisburð-
ur þeirra þar um fram leggjast, áður til atkvæða kem-
ur í fjelaginu um úthlutun verðlauna eða peningastyrks.
Þegar um eitthvað það skal ráðslaga fjelagsins efnum
og fyrirtækjum viðvíkjandi, er ei varð ákveðið á aðal-
fundum fjelagsins, leitar aukaforseti fulltrúanna skrif-
legs eða munnlegs atkvæðis, að minnsta kosti þeirra,
er búa í 4 næstu sýslum við Reykjavík. Skulu þá slík
málefni út kljást eptir atkvæðafjölda fulltrúanna ogfje-
lagsstjórnarinnar. Hver sá, er að atkvæðafjölda til full-
trúakosningar gengur næst þeim, sem kjörnir verða,
nefnist „varafulltrúi11, og skal hann í forföllum annars-
hvors hinna gegna hans skyldum.
§ 15-
Fjelagsmót öll skal halda í Reykjavíkur-kaupstað.
Kunngjörir aukaforseti í hvert 'sinn fyrirfram ýtarlegar
stað og stund.
§ 16.
Tvö skulu fjelagsmót, annað á stiptunardag fje-
lagsins, 28. janúaríí, hitt 5. júlí ár hvert. Ef annan-
hvorn þessara daga ber á sunnudag, má samkomu fje-
J