Búnaðarrit - 01.01.1900, Qupperneq 20
Árið 1865, á fjelagsfundi 5. dag júlímánaðar,
veitti fjelagið 100 rd. til að styrkja nokkra sjávar-
bændur hjer syðra, til að sækja sýningu þá, sem þá
var stofnuð í Björgvin í Norvegi, á fiskiveiða-áhöldum,
og sóttu 3 menn úr Reykjavík og Gullbringusýslu sýn-
ingu þessa: Oeir ZoV/ja (síðar kaupmaður), Kristinn
Magnússon, bóndi í Engey, og Guðmundur Guðmunds-
son, bóndi á Landakoti á Vatnsleysuströnd. Þessir
menn keyptu þá í Norvegi fyrir fje það, er þoir höfðu
í höndum frá fjelaginu, síldarnet og dráttarnet, og komu
með, er þeir komu aptur, og. hafa slík net opt verið
notuð síðan til ádráttar fyrir síld og upsa hjer syðra,
en síldarnet og ádráttur mun áður hafa verið hjer ó-
þekktur, og hefur opt vel heppnazt.
Á júlífundinum 1866 hjet fjelagið
1. fimm verðlaunum fyrir jarðabætur, þúfnasljettun, tún-
garðahleðslu og vatnsveitingaskurði;
2. tvennum verðlaunum fyrir garðyrkju;
3. fernurn verðlaunum fyrir vöruverkun: a tvennum
verðlaunum fyrir beztu vöndun á hvítri ull, og b tvenn-
um verðlaunum fyrir beztu vöndun á tólg;
4. tvennum verðlaunum fyrir fyrirtaks-húsagjörðir;
5. tvennum verðlaunum fyrir útvalin róðrarskip.
Verðlaunin voru bundin því skilyrði, að verkin
væru gjörð fyrir haustið 1868.
Samkvæmt þessum ákvæðum um verðlaunin kom
málið til umræðu á júlífundinum 1869, ogvarþáverð-
launum úthlutað, og nokkrum veitt þóknun, þótt skil-
yrðunum væri eigi fullnægt, þannig:
a) Fyrir jarðabætur, verðlaun........40 rd.
sem þóknun....................... 60 — = 100 rd.
b) Fyrir ullarverkun, verðlaun .... 15 —
Flyt 15 —
100