Búnaðarrit - 01.01.1900, Page 32
32
talin að vora .um 1800—2000 potta um árið. Eptir
mjólkurtöíiunum, cr jeg hef sjeð frá þessum tíma, er
meðalársnyt 210 kúa 2212 pottar, og á öðrum stað
40 kúa 1800 pottar. Á Gjedergaard, þar sem umsjón-
armaður og búfræðingur Buns bjó um tíma, var meðal-
ársnyt til jafnaðar þessi:
Árið 1853 1885 pottar
1854
1855
1856
2323
2483
2186
Á árunum miili 1860 og 1880 var verzlun mcð naut-
gripi til Englands fjörug; voru þeir íiuttir þangað lif-
andi og seldir á fæti. Árið 1865 var t. a- m. fiutt til
Englands 10794 nautgripir, og árin 1874—78 voru
fluttir út að meðaitali hvert ár 48,169 nautgripir. Pessi
útflutningur hjelzt, og fór nokkuð vaxandi, þangað til
árið 1892, að bannað var að flytja lifandi pening til
Englands. Pá voru Danir fyrir nokkru byrjaðir á að
flytja nautgripi lifandi til Þýzkalands, og þegar inn-
íiutningsbannið til Englands datt á, óx útíiutningurinn
þangað. Árið 1893—94 voru fiuttir til Þýzkalands yflr
100 þúsund nautgripir; en 1896 tók að nokkru leyti
fyrir þennan íiutning þangað. Síðan hafa Danir ekki
íiutt út til muna lifandi pening til niðurlags. En í
þess stað hafa þeir hin síðustu árin komið á fót hjá
sjer slátrunarhúsum, gripirnir eru seldir til þeirra, en
kjötið sent út. Þannig hafa Danir um alllangan tíma
lagt stund á, bæði að afla sem mestrar mjólkur og ala
upp nautgripi til niðurlags; en sjaldnast eru það sömu
mennirnir, er lagt hafa stund á hvorttveggja, og um
hverja einstaka sveit má enda segja hið sama. Bænd-
urnir hafa skipt með sjer framlciðslunni þannig, að
sum hjeruðin hafa mest hugsað um að alla mjólkur,