Nýja stúdentablaðið - 01.04.1953, Qupperneq 12

Nýja stúdentablaðið - 01.04.1953, Qupperneq 12
10 NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ BJARNI BENEDIKTSSON frá Hofteigi: HVSÐ KOST5R LfFTÐ? Við höfum séð þá. Við höfum séð þá safnast saman í Oddfelló til að éta. Við höfum séð þá aka á dularfundi í Frímúrarareglunni. Við höfum séð þá gapandi af sjálfsánægju í Þjóðleik- inu. Við höfum séð þá undirrita landráðasamninga í Stjórn- arráðinu. Við höfum séð þá veltast í drykkjuskap suður á Hótel ískariót. Við höfum séð þá baka sig á svölum 200 fermetra sumarbústaða á Þingvöllum. Við höfum séð þá lifa af því að ljúga í Morgunblaðinu. Við höfum séð þá stela islenzkum milljónum í amerískum bönkum. Við höfum séð þá ríða ösnum suður á ítalíu. Já, hvort maður hefur séð þá, höfðingjana í Reykjavík. Margir þeirra voru eitt sinn stúdentar í Háskóla íslands. Guð má vita hvort þeir voru ekki róttækir á sína vísu sumir hverjir — löngu áður en Félag róttækra stúdenta var stofnað. Hvað kostar lífið þessa menn? Það kostar þá nokkrar milljónir. Þeir skynja lífið sem lúksusvarning. Það eitt skiptir máli að komast yfir peninga til að kaupa hann. Höll, vald — það er draumurinn. Þjófnaður, svínarí, — það er aðferðin. Spilling, blindni — það er einkennið. Og svo þykjast þeir ekki aðeins vera menn, heldur einnig salt jarðar, máttarstólpar þjóðfélagsins. Þessir náungar eru ekkert sérstakt íslenzkt fyrirbæri, heldur eru þeir angi sjálfs hins alþjóðlega auðvalds í sjúk- dómi þess og elli. Sú var tíð að jafnvel „höfðingjarnir“ í Reykjavík báru ættjarðarást í brjósti, þekktu til hugsjóna, báru kennsl á baráttu fólksins. Hnignun íslenzkrar valda- •» stéttar hefur haldizt í hendur við göngu auðvaldsins í heim- inum frá verksmiðjurekstri til styrjaldarreksturs, frá þjóð- nýtum framkvæmdum til alþjóðlegs samsæris. Þegar við sjáum þá, herrana hérna í Reykjavík, sjáum við síð- ustu dreggjar stéttar sem runnið hefur skeið sitt á enda, en snýst örðug við á grafarbakkanum til að skrumskæla sig framan í lifið. Það fer ekki hjá því að maður finni til vorkunnsemi með þeim. Nú á dögum þýðir lítið að þykjast vera róttækur án þess að standa í jarðsambandi við verklýðshreyfinguna. Nú á dögum þýðir lítið að flagga með háa lærdómstitla án þess að skilja hinn alþjóðlega sósíalisma. Þegar öll kurl koma til grafar er hvorki heimsstríð né atómsprengja höfuðsannindi liðinnar né líðandi stundar. Meginstaðreynd allrar sögu síðustu áratugi er einmitt verklýðshreyfingin, sósíalisminn — vöxtur þeirra og viðgangur. Víst er efna- fræði mikil vísindagrein. Vissulega er himingeimurinn stór- brotið rannsóknarefni. Máttugt er aðdráttarafl mannkyns- sögu. En efnafræðingurinn, stjarnspekingurinn, sögukönn- ^ uðurinn — allir þessir menn lifa þó aðeins í útskæklum tilverunnar ef þeir þekkja ekki um leið sannleik verka- mannsins á eyrinni, stúlkunnar í frystihúsinu, hásetans á bátnum. Verklýðshreyfingin, sósíalisminn er aflgjafi sannrar framfarar í dag, frumkraftur allra höfuðþátta nútímaþróunar; aðeins á vegum verklýðshreyfingar og sósíalisma mun friður vinnast. Við íslendingar lifum í ófrjálsu þjóðfélagi í dag, búum við sívaxandi íhlutun ann- arlegra aðilja, sjálfstæði okkar á fallanda fæti um skeið. Það er mikil hrelling að vita góða drengi, sem unna frelsi þjóðarinnar og hafa trú á íslenzku sjálfstæði, smíða sér eitthvert óhlutstætt plan uppi í loftinu til að heyja frá brautirnar verða beinar, því að hugurinn ber menn hálfa leið. Hinni löngu og frjósömu starfsævi Stalíns er nú lokið. Sem ungur menntamaður gekk hann á hönd lífsstefnu er ýmsir héldu að væru óraunhæfir draumórar stofulærðra sérvitringa, máttvana ósk alþýðunnar um betra og rétt- látara líf. Stalín tókst að blása lífi í drauminn, gera ríki al- þýðunnar að sterkasta og glæsilegasta veruleika vorra daga og allra tíma. í stað örvæntingar hins nafnlausa, sljóa, von- lausa, kúgaða múgs, er nú kominn hinn frjálsi, glaði og hnarreisti einstaklingur sem þekkir rétt sinn og afl, og bræðralag þessa nýja mannkyns. Ég tel mér skylt að minn- ast þessa verks í hátíðariti Félags róttækra stúdenta og bera fram mínar fátæklegu þakkir. Á hinu fagra, sögufræga Rauða torgi í Moskvu stendur grafhýsi Leníns, ein látlausasta og þokkafyllsta bygging í heimi. Þangað var fluttur til hinstu hvíldar líkami hinnar miklu hetju starfsins, Jósefs Stalíns. Nafn hans hefur verið klappað djúpt í dimmrautt granít austurveggsins fyrir neðan nafn Leníns. Hér fékk Stalín leg, við hlið félaga síns og lærimeistara, í hjarta þess volduga ríkis sem hann skapaði og festi í sessi öllum öðrum mönnum framar. Það ríki er bautasteinn hans. Á Stalín mun rætast spá hins mikla rússneska skálds: Að merki því mun þjóðbraut troð- in síðan og þangað mæna augu klökk. Reykjavík, 9. apríl 1953. Þorvaldur Þórarineson.

x

Nýja stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.