Nýja stúdentablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 18
16
NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ
EINAR K. LAXNESS, stnd. mag.:
Félag róttækra stúdenta
Starfið fyrr oy síðar
Á 13. degi aprílmánaðar árið 1933 komu sautján stúd-
entar í Háskóla íslands saman til fundar í þeim tilgangi að
setja á stofn pólitiskt félag er hlaut nafnið Félag róttækra
stúdenta. I fyrstu lögum þess segir að tilgangurinn sé ,,að
styðja og efla hina róttæku hreyfingu í háskólanum og
þjóðfélaginu og vinna að sameiningu hinna róttæku afla
í baráttunni gegn íhaldi og fasisma fyrir atvinnu, lýðræði
og menningu þjóðarinnar“. Hér var ekkert verið að aðhaf-
ast neitt út í bláinn, það var knýjandi nauðsyn sem dró
þessa róttæku stúdenta saman í einn hóp. Illar blikur voru
í lofti. Afturhald heimsins undir forystu nazismans var í
algleymingi; rúmlega 2 mánuðum áður hafði Hitler tekið
völdin í Þýzkalandi og járnhæll nazismans markaði nú
djúp svöðusár í hina glæsilegu þýzku menningarþjóð. Ang-
ar ófreskjunnar teygðu sig í hvert landið á fætur öðru og
flokkar auðstéttarinnar fengu hvarvetna á sig hið villi-
mannlega eðli, ofbeldið varð naktara, lýðræðislegar vinnu-
aðferðir fótumtroðnar.
Það er á stuttan en einfaldan hátt sem Eiríkur heitinn
Magnússon, einn ötulasti forustumaður félagsins, setur
fram aðalinntak þess tilefnis sem róttækir háskólastúd-
entar vildu mótmæla með félagsstofnun sinni, í upphafs-
grein Nýja stúdentablaðsins 20. apríl 1933: „Vér viljum
ekki láta brjóta á oss lög né ganga á rétt vorn. Þeim er það
hafa gert, unnum vér ekki lengur yfirráðanna yfir blaða-
kosti og félagsstarfi háskólastúdenta allra.“
Róttækir stúdentar höfðu að vísu áður bundizt óform-
legum samtökum sem voru orðin allsterkt afl í stúdenta-
lifinu, en það er fyrst þetta vor, 1933, sem frjálslyndir,
róttækir stúdentar knýta saman bönd sín á formlegan hátt.
Hér voru menn sem höfðu mismunandi skilning og skoðun
á hinum pólitísku málum þjóðfélagsins, kölluðu sig sam-
vinnumenn, sósíaldemókrata eða kommúnista, en þeir voru
nógu þroskaðir til þess að láta slíkt ekki hindra sig í stofn-
un róttæks félags á samfylkingargrundvelli er borið væri
uppi af trúnni á einhuga alþýðustéttir þessa lands, trúnni
á rétt þeirra til gæða landsins, og nauðsyn þess að standa
óklofnir í baráttu gegn höfuðfjandmanni hins vinnandi
fólks, afturhaldinu er flett hafði af sér hræsnisgrímunni og
sýndi sitt rétta og sanna fasistaeðli í vaxandi mæli.
Þessir ungu menn er mynduðu Félag róttækra stúdenta
sýndu vissulega aðdáunarverðan þroska og skilning á eðli
baráttunnar gegn afturhaldinu og þau réttu viðbrögð er
nauðsyn bar til fyrir róttæka menn að taka. Þeir gáfu
einnig hinum vinstrisinnuðu flokkum landsins glæsilegt
fordæmi með samfylkingu sinni, fordæmi er flokkarnir
báru þó ekki gæfu til að taka til fyrirmyndar, — þrátt fyrir
stöðugar tilraunir róttækustu aflanna.
★
Brot úr hinni óskráðu sögu Félags róttækra stúdenta
þessara 20 ára má lesa í Nýja stúdentablaðinu, því blaði er
hóf göngu sína i apríl 1933 skömmu eftir að félagið var
stofnað og ætíð hefur verið vettvangur frjálslyndis og rót-
tækra skoðana, málgagn frjálshuga og framfarasinnaðra
stúdenta og annarra menntamanna.
Það væri of langt mál að rekja hér í heild sögu félagsins,
en þó er ekki hægt að láta hjá líða að láta hugann reika til
hinnar erfiðu baráttu er félagarnir háðu á árunum fyrir
styrjöldina. Þar skiptast á vonbrigði og sigrar. Það hefur
verið gleðistund þegar félagið réði meirihluta í stúdenta-
ráði, tímabilið 1935—1936; það er talandi tákn um einhug
f élaganna, um sigurvissuna, þegar í baráttunni standa menn
er skilja hlutverk sitt og hvika ekki frá stefnu sinni þótt
syrti í lofti.
Það hefur verið gleðileg stund fyrir róttæka stúdenta
að hafa tækifæri til þess að ráða aðalræðumanni hátíða-
haldanna 1. desember 1935; þeir fengu Halldór Kiljan
Laxness til þess að koma fram í nafni stúdenta þennan dag
og tala um samfylkinguna sem málstað fólksins. Það hefur
sannarlega verið ógleymanlegt augnablik fyrir þá, en um
leið svíðandi og sársaukafullt fyrir afturhaldsforkólfana í
landinu, enda kom það glöggt í ljós. Meirihluti róttækra
varð þvi miður ekki langær og hin næstu ár settu stúdentar