Dvöl - 01.10.1938, Qupperneq 41
D V Ö L
279
niaöur ágætur söngmaður og
snillingur að spila á fiðlu.
En fólkið í sveitinni var siða-
vant. Það barst út s,á örðrómur
að hann væri byltingasinnaður og
fríhyggjumaður. Menn njósnuðu
um allt sem hann tók sér fyrir
hendur og einn góðan veðurdag
var hann kærður fyrir prestinum
og sveitarstjórninni og ák'ærður
um að hafa kysst stúlku, eina af
nemendum sínum, á skemmtisam-
komu bindindisfélagsins. Unnusta
hans sleit trúbfuninni og hann var
sviptur stöðunni.
Og þegar hann fór burt með
„Fjarðaskipinu“ fann hann að
hann var hrakinn — já!, rekinn
burtu úr fæðingarsveit sinni, frá
fólkinu, sem leit nú á hann eins
og glataðan son.
Síðan heyrðist ekkert frá hon-
um. Hann hafði farið til Ameríku,
það vissu menn. En enginn, sem
skrifaði að vestan hafði séð hann
eða heyrt af honum.
Foreldrar hans dóu, án þess að
frétta nokkuð af honum, ekki eitt
einasta bréf, — ekki einn eyri, —
ekki kveðju. Það var eins og hann
hefði horfið yfir um hafið — —
hafið, sem enginn boðskapur
kemst yfir.
Og nú situr hann hér, sem gam-
all maður. Upp úr vasa hans gæg-
ist lindarpenni og blýantur
hvorttveggja úr gulli. Milli vest-
isvasanna liggur digur gullkeðja
log á beinaberri hendinni ber hann
frímúrarahring log stimpilhring,
báða úr gulli.
Hann brosir aftur. „Munið þér
ekki eftir Aas kennara?“
„Jú, en--------það eru þó um
fjörutíu ár síðan“.
„Já, það eru nákvæmlega fjöru-
tíu ár síðan. Ég skil að þér muni^
eftir þessu. En ég skrifaði ekki
heim. Hingað til hef ég ekki vilj-
að hitta neinn að heiman, sem ég
hefi þekkt. I hvert skipti, sem ég
vissi af einhverjum nálægt mér,
er vissi hver ég var, fann ég alltaf
eina eða aðra ástæðu til þess að
hverfa. Þannig vildi ég nú- hafa
það“.
Hann kinkaði kolli og endurtók:
„Já, þannig vildi ég nú hafa
það“.
Ég leit á hann. Hann hélt áfram.
„Það var vegna smánarinnar. En
nú, eftir svona langan tíma, get
ég talað óhikað: Það var líka af
öðrum ástæðum. Það var áætlun
— — — hugmynd, — — — you
know — ég vildi ekki láta neinn
að heiman sjá mig fyrr en ég
hafði fengið uppreisn. Fyrst vildi
ég verða ríkur og voldugur, og
fara síðan heim í fæðingarsveit
mína og geta gert þar allt, sem
ég vildi. Fyrst ætlaði ég aðkaupa
stærstu. jörðina í sveitinni og gera
hana að reglulegri paradís. Þá
myndu allir reka upp stór augu log
segja: „Þetta er nú maður!“ Svo
hefði ég hesta og gyltan vagn
og peninga til þess að ausa á báð-
ar hendur. Síðan myndi ég byggja
>