Dvöl - 01.01.1942, Qupperneq 20

Dvöl - 01.01.1942, Qupperneq 20
14 DVÖL vinnukonur og heimasætur frá einu trénu til annars. Sumir bera stórar körfur á bakinu; þær eru hálfar eða fullar af gómsætum, nærri svörtum kirsiberjum. Aðrir bera langa stiga, sem reistir eru upp við trén til þess að auðveld- ara sé að lesa berin. Kirsuberin eru mjög góð til átu — svo fram- arlega þó sem maður drekkur ekki vatn næstu klukkustundirnar á eftir, því að þá valda þau hræði- legri borgarastyrjöld og vanlíðan í maganum á manni. Um uppskeruleytið er glatt á hjalla hjá bændunum og starfs- liði þeirra. Á kvöldin, þegar vinnu er hætt og húma tekur, heim- sækir uppskerufólkið hvert ann- að og fer þá oft í flokkum. Er þá rabbað og sungið, dansað og drukkið, langt fram eftir nóttum. Kirsuberjabrennivín er áfengt til drykkjar, og þegar leikið er á fiðlu, harmóníku eða önnur hljóðfæri á mánabjörtum nóttum, losna inni- byrgðar þrár úr læðingi og sé einhver of gamall til að dansa, þá segir hann að minnsta kosti ævin- týri og sögur, sem hann hefir munað frá því hann var barn. En þegar ekki er lengur til setu boð- ið, glottir bleikfölur máninn að elskendunum, sem laumast drukk- in af hamingju og brennivíni út 1 stjörnubjarta, hlýja og unaðs- kyrra vornóttina. Þegar við lögðum af stað í för- ina til Bernaralpanna voru kirsu- berjatrén í sínu fegursta skrúði — og nú brunaði bifreiðin eftir steinsteyptum, breiðum akvegi, sem lá á milli blómgaðra kirsu- berjatrjáa. Krónurnar kysstust yfir þaki bifreiðarinnar og buðu okkur velkomna í land hinna fjólubláu skóga. Framundan eygjum við Zug, lítinn en óvenjulega litskrúðugan bæ á bökkum samnefnds vatns. Þorpið er nokkuð fornt,með þröng- um götum, hornskökkum húsum, turnum og trjónum — og húsin öll máluð ótrúlega ljósum og glannalega skærum litum. Víða eru ártöl máluð eða greypt i vegg- ina fyrir ofan dyrnar, og tákna þau aldur húsanna. Mörg eru frá 15. og 16. öld, en fleiri eru þó yngri. Á framhliðum húsanna eru víða freskómyndir málaðar úr sögu Svisslendinga og þá sér í lagi þeirri, er á einhvern hátt snertir Zug eða Zugarbúa. — En til að sjá liktist bærinn einna helzt stóru kúbistísku málverki, sem klesst hefir verið niður á vatns- bakkann. Enda þótt saga Zugar sé í stór- um dráttum máluð á húsgafla bæjarins, er þó einn sá atburður, sem hvergi finnst málaður. Hann myndi vekja of sárar minningar í hugum þorpsbúa, því að enn er hann elztu íbúunum í fersku minni. Þessi atburður skeði 5. júlí árið 1887. Þann dag risu íbúarnir í Zug að vanda árla úr rekkju og gengu til
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.