Dvöl - 01.01.1942, Síða 80

Dvöl - 01.01.1942, Síða 80
74 DVÖL felst í setningunni — sami grautur í sömu skál. Fyrir þrem árum komu þrjár smásögur eftir Sigurð Helgason á markaðinn í bók, sem nefndist „Og árin líða“. Ég dirfðist þá að spá þeirri bók langlífi, einkum vegna sögunnar „Skarfakletts“. Enn send- ir Sigurður frá sér bók. Sú heitir „Við hin gullnu þil“, og er í rauninni á mörk- um þess, sem teljast verður smásaga og skáldsaga. (Segja má, að allar smásögur séu skáldsögur, en við höfum nú ekki betri orð við hendina, svo að þessi verða að nægja.) Ég verð að segja, að mér finnst þessi grautur frá höfundi „Skarfakletts" óþarf- lega bragðdaufur. Sagan greinir frá ungri heimasætu, sem gengur að eiga slæping og drykkjurút og flyzt til hans, en sér eftir öllu saman, eins og við er að búast, þótt hún játi það naumast fyrir sjálfri sér, hvað þá öðrum. Þegar allt er að komast í óefni og vesalings konan getur eiginlega hvorki farið né verið, lætur höfundur hana verða úti í íslenzkri mann- drápshríð. En svo er eins og hann fái einhvern eftirþanka, sennilega vegna þessara dramatísku en ófrumlegu sögu- loka, og á seinustu blaðsíðunni reynir hann að breiða dularslæðu þjóðsögunnar yfir alla frásögnina. Sú viðleitni ber þó ekki tilætlaðan árangur, enda á engan hátt undirbúin. Sagan er laglega skrifuð, en tilþrifa- lítil og missir marks, ef höfundur hefir þá ætlað henni nokkurt mark. Einnig nafnið virðist algerlega út í bláinn, en um það þýðir víst ekki að fást, svo mjög sem þau breiðu spjót tíðkast nú. Það er bæði vandi og vegsemd að vera höfundur smásögu eins og „Skarfakletts", þótt hún sé engan veginn svo fullkomið listaverk, að höfundur hennar geti engu við sig bætt. Ég fæst ekki til þess að viðurkenna, að Sigurður Helgason hafi brugðizt vonum mínum sem rithöfundur; hitt er annað mál, að enn hefir hann ekki uppfyllt þær. En ég trúi því, að hann eigi það eftir. Þess vegna hlakka ég til að sjá næstu bókina hans. Þórárinn GuSnason. Guðmundur Böðvarsson: Álf- ar kvöldsins. Bókaútgáfa Heimskringlu. Reykjavík 1941. Síðasta ljóðabók Guðmundar Böðvars- sonar á Kirkjubóli, „Álfar kvöldsins", er nýtt og órækt vitni um það, að hann er einn í hópi hinna beztu skálda íslenzkra, sem nú eru uppi. En nafn bókarinnar er óheppilega valið, minnir á „Stjörnur vorsins". Goethe gamli lét svo um mælt, að mik- ið skáld þyrfti þrennt að gera á degi hverjum: Tala við fallega stúlku, skoða fagurt listaverk og hlýða á fagran söng. Fá munu íslenzku skáldin, sem átt hafa kost á öllu þessu, og ekki sízt mim sú raunin um Guðmund Böðvarsson. Mega þó meyjar og konur í Hvítársíðu ekki líta svo á, að ég sé að bera brigður á kven- legan þokka þeirra. En guði sé lof, að mörg íslenzk skáld hafa samt hlotið mik- inn þroska — þrátt fyrir fámennið og fátæktina. Annars væri ef til vill ekki fjarri lagi að ráðleggja þeim, er vita vilja eitthvað um Guðmund sjálfan og skáldraunir hans, að lesa vandlega kvæði hans um Stephan G. Stephansson. Mér er sá grun- ur í hug, að margt sé þar sagt, er lýsi sjálfs hans hag, eigi síður en Stephans G.: Þreyttur bóndi hefir lokið erfiðu dagsverki við jarðyrkju og ræktunar- störf. Ljúft væri honum að hvílast sem öðrum, en hann heyrir hvísl við gróf gluggatjöldin og vængjablak við þak og dyr og veit, að hin himinborna dis er í námunda í sínum bláa kjól. En lúi er í herðum og höndin vinnustirð, „og Ijóðið hljóða hverfur sært til skógar". En bónd- inn festir ekki væran svefn. Um miðja nótt rís hann úr rekkju og yrkir ljóð sitt — að ætla má. Ég hefi ekki lesið öllu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.