Dvöl - 01.01.1942, Blaðsíða 63
dvöl
57
hrings? Mér líður vel hér. Mig
langar til þess að sofa í næði. Er
ekki nóg, að ég hlýði messu með
lotningu tvisvar hvern helgidag og
sé á bænasamkomum á hverju
miðvikudagskvöldi?“
Trúin hans Smiðs hnipraði sig
saman og geispaði. Gólfábreiðan
var mjúk og hlý.
Presturinn mælti:
„Ertu annars ein hérna?“
„Við erum allar hérna, trú Jón-
asar og konu hans, trú Browns og
konu hans — við erum hér allar.
Okkur líður vel hér, og í nútíma-
Hfinu er ekkert rúm fyrir okkur.“
Presturinn rétti hendina undir
kirkjustól Browns og dró trúar-
skapnað hans fram. Þetta var
hvapkennd, ólöguleg og vambkýld
hking þessa velmetna borgara,
hans Browns miðlara. Presturinn
hristi hana óþyrmilega.
Beinlausir fæturnir lyppuðust,
döpur augun ranghvolfdust;
Önnur lífsmerki voru ekki sýnileg.
„Ég er trú Browns á guð. Stall-
systur mínar eru hérna líka —
samvizka hans, dyggðavitund, ást
hans. — Við erum aldar á pening-
úm og hafðar hér til þess að vernda
hann frá öllu illu. Fæðan er ónóg,
°g bein okkar eru lin, því að þau
vantar sölt og kalk og áreynslu.
erum að sofna svefninum
langa.“
hegar hér var komið greip trú
konu hans fram í. Hún var fögur
á sinn hátt, mjög kvenleg og glað-
leg með barðalausan hatt og
skrautklædd.
„Þetta er hvítasunnuhatturinn
minn — ljómandi fallegur!“
Hún var þó glaðleg, þótt hana
skorti þrótt. — Trú Browns var
aftur á móti bæði ólöguleg og
líflaus.
Presturinn gekk frá einum
kirkjubekknum til annars og vakti
íbúana með heiftúðugum spörk-
um og áminningum og ætlaði nú
að taka þá til bæna, kröftuglegar
en hann hafði nokkurntíma áður
gert, því að hann var reiður. En
þegar hann var kominn upp í pre-
dikunarstólinn, var allur söfnuður-
inn hniginn í sama, væra svefninn
og áður.
Hann vaknaði.
Marteinn Lúther, höfundur sið-
bótarinnar svokölluðu, er sagður
hafa ort þetta erindi:
Wer nicht liebt Wein,
Weib und Gesang,
Er wird ein Narr sein
Leben lang.
Jón Thoroddsen skáld íslenzk-
aði það á þessa leið:
Sá, sem aldrei elskar víf,
óð né fagran svanna,
hann er alla ævi sin
andstyggð góðra manna.