Dvöl - 01.01.1942, Page 53

Dvöl - 01.01.1942, Page 53
D VÖL 47 Þau voru saman alla nóttina, og Pavel fann, að Jelína var einhvers- konar dulúðug upphrópun, sem hann var knúinn til að endurtaka í sífellu; hvísla fram á varir sér, stama upp, svelgjast á og segja aftur og aftur sér til leiðinda. Þegar lýsti af degi, gengu þau út á tröppurnar. Jelína hló, en Pavel starði á svörtu tjörnina. „Elskarðu mig, Jelína, elskarðu mig annars .... nokkurn skapað- an hlut?“ „En þú sjálfur, aulabárðurinn minn?“ „Ég er frávita af ást til þín, Jelína! Þú ert eina konan, sem gert hefir mig svona sturlaðan .... Mér er ekki lengur ljóst, hver ég eiginlega er. Þessi vitfirring er kvöl, Jelína. Hún er brennandi þrá eftir þúsund nóttum, kvöldum og morgnum með þér! Þessi vitfirr- ing er töfrandi, af því að þú ert töfrandi, Jelína! Biddu mig ekki að horfa á þig núna, .... gerðu það fyrir mig!“ Pavel einblíndi á tjörnina. Og honum fannst hún brenna af þrá eftir að fá þrýst að brjósti sínu hinni hvítu spegilmynd sumarhúss- ins, lilju hjarta síns .... þrá það með ákefð þess, er veit, að hann aldrei muni finna hugfró. Pavel dirfðist ekki að líta á Jelínu. En Jelína hló og deplaöi aug- únum .... reri sér mjúklega í átt- ina til hins fjarlæga sjónbaugs .... hló án þess að vita, hversvegna hún hló. Hann hafði sungið fyrir hana, leikið á hljóðfærið fyrir hana; hann hafði orðið frávita hennar vegna; hann hafði kysst hana og faðmað að sér .... hann hafði kallað hana yndislegustu konu í heimi. En það var henni ekki nóg. Jelínu varð allt í einu ljóst, að hverju hún hló: hún hló að hatr- inu, sem vaxið hafði í brjósti henn- ar um nóttina við hvern koss og mundi láta manninn endur- gjalda með lífi sínu sæluvímu líðandi stundar. Já, Jelína hló og vaggaði líkama sínum .... líkama, sem geislaði frá sér hreinleik og seiðandi ang- an. Og nasavængir hennar titr- uðu, ekki af hlátrinum, heldur hinu skyndilega uppblossaða hatri. Pavel leit ekki á hana, en heyrði hlátur hennar. Hann hrópaði upp: „Að hverju hlærðu, Jelína?“ „Að þér, auðvitað!“ Pavel sneri sér snögglega að Jel- ínu. Úr augum hans brann ofsa- kennd spurning: „Og hvers vegna hlæröu að mér?“ En Jelína dró hendur Pavels til sín .... spennti handleggi hans utan um sig .... og varð máttvana í faðmi hans .... í sælukenndri þjáningu. Hún mælti: „Kysstu nú í vitund þína end- urminningu um mig, því flóns- legra þeim mun betra, aulabárð- urinn minn!“

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.