Dvöl - 01.01.1942, Síða 75

Dvöl - 01.01.1942, Síða 75
D VÖL 69 Kvöld — og þau vöfðu hvort annað örmum og fundu hjartaslög sín, hamingjusöm o'g á valdi hvors annars, meðan stjörnurnar tindr- uðu á bláum himninum og gægð- ust inn um gluggana. Morgunn — og minnsta barnið, sem kunni aðeins að segja tvö orð, mamma og mjólk, öskraði síðara orðið af svo æðisgengnum krafti, að konurnar í næstu húsum ráku höfuðin út um gluggana og spurðu, hVort barnið gæti ekki haldið sér saman, eða hvort það ætti að neyða fólk til að flýja upp í óbyggðir. Dagur — og börnin þóttust ekki geta étið matinn nema að fá kart- öflur með-----. Vika — og hann ráfaði um með hendur í vösum og bað menn um vinnu. — Ár — og hann hafði ekki bragðað áfengi og vissi ekki hvað það var að vera fullur. — — Þannig kemur liðni tíminn aft- ur — eins og heljarmikið hjól, sem snýst án afláts, hægt og rólega, og það er alltaf eitthvað á uppleið, þegar annað er á niðurleið. Jói sjó þerraði augun með tó- baksklút og gekk aftur á. Hann stakk báðum höndum í vasana, stanzaði við borðstokkinn stjórn- borðsmegin og spýtti út á sjóinn. Síðan gekk hann yfir að öldu- stokknum bakborðsmegin, keyrði höfuð aftur á bak, lét skína í tenn- urnar og spýtti út á sjóinn allfyrir- litlega. Síðan spígsporaði hann aft- úr og fram um þilfarið, tók í nef- ið og gretti sig, eða hrækti út á sjóinn, þangað til skipið lagði upp að bryggju í Reykjavík.------ Sjórinn er jafn lygn, þó að klukkustundirnar líði og skipið haldi til baka með vélaskrölti og látum. Það er í rökkurbyrjun og þunglamaleg kyrrð ríkir í vængja- tökum fuglsins, sem flýgur yfir skipinu og heitir máfur. Bátarnir eru að koma úr róðri — með fisk. Ef til vill með fisk. Hann hafði verið tregur undanfarið og svo bættist gæftaleysi við, svo að menn voru orðnir sárgramir guði á himn- um og höfðu ýmis ljót orð í frammi til að skeyta skapi sínu á forsjón- inni, til einskis þó. Jóhannes sjóari stóð við borð- stokkinn og bjó sig undir að skirpa á sjóinn, en hætti svo við það og renndi því niður, sem hann hafði ætlað að skirpa. Hann sá bátana nálgast, og þeir ristu djúpt, og það gljáði á olíuborna skrokkana. — Ef til vill yrði forsjónin mönnunum hjálpleg í þetta sinn. Fólkið stendur á bryggjunni og horfir á skipið nálgast. Hvað er það, sem er þarna? spurði einhver og benti á skipið. Menn fóru að stinga saman nefjum um þetta, — en skipið nálg- aðist. Jóhannes sjóari stóð við borð- stokkinn og hafði hætt við að skirpa á sjóinn. Fólkið sagði: Hvað er það, sem er þarna fyrir aftan hann Jóa sjó-----?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.