Dvöl - 01.01.1942, Page 82

Dvöl - 01.01.1942, Page 82
76 DVÖL háttar ritverk hans, saga Maríu Stúart Skotadrottningar. Áður hafði sami út- gefandi gefið út sögu Maríu Antoinette, en aðrir „Magellan" og „Undir örlaga- stjörnum". Nokkrar smásögur hans hafa einnig verið þýddar á íslenzku, þar á með- al „Hlaupaæðið", er birtist sem fram- haldssaga í Dvöl fyrir nokkrum árum. Ekki er það á minu meðfæri að fella dóm um sannleiksgildi þessarar bókar; frá því munu jafnvel flestir leiða hest sinn. Það mun nefnilega aldrei fást úr því skorið, hvernig fjölmörg atriði í lífi drottningarinnar hafa fallið né hvað satt kann að vera í því efni og hvað er álogið. Þar er vitni gegn vitni, „sönnunargagn" gegn „sönnunargagni". Stefan Zweig leitaðist fyrst og fremst við að gera sér glögga grein fyrir sálar- lífi drottningarinnar og þeirra, sem við sögu hennar komu. Við þetta sálræna mat styðst hann síðan fyrst og fremst, þegar heimild mælir gegn heimild og hann þarf að velja og hafna. Hér reynir meira en litið á mannþekkjarann. Hann þarf að sjá í gegn mistur margra alda og gern- ingahríð óteljandi getsaka, aðskilja sann- ar heimildir og falsaðar. En hvernig sem rithöfundurinn hefir tekizt að finna slóð veruleikans og fylgja henni með þessum hætti, þá hefir hann þó skrifað skemmti- lega bók, sem lesin er af áfergju í mörg- um þjóðlöndum. Eigi mun íslendingum þykja öðrum þjóðum síður mikið til um örlög Skotadrottningar, eins og Stefan Zweig skýrir þau. Og gott er til að vita, að Magnús Magnússon hefir þýtt bókina á þróttmikið og áhrifarikt mál, eins og þeirri sögu hæfir, þótt til mætti tína ein- staka setningar, sem lýti eru á. J. H. í verum. — Saga Thedórs Friðrikssonar. Víkingsútgáfa 1941. — Arnór Sigurjónsson sá um útgáfuna. Vestarlega á Skjálfandaflóa, hálfa viku sjávar undan landi, liggur allstór eyja, láglend og flatlend. Það er Flatey. Grunn- sævi er umhvérfis eyna og brimasamt í hafátt, og sjór oft ókyrr, þótt veður sé blitt. En fögur er landsýn úr Flatey og fjallahringurinn tilkomumikill austan frá Rauðunúpum vestur að Gjögurtá. í norðri hillir Grímsey fyrir miðju hafi. Á þessari eyju fæddist ungum og fá- tækum hjónum, Sesselju og Friðrik að nafni, sonur fyrir 66 árum. Hann var vatni ausinn og nefndur Theódór. Þegar fram liðu stundir, hneigðist Theó- dór Friðriksson til ritstarfa, og hefir hann orðið allafkastamikill á því sviði. Alla ævi mun hann þó hafa orðið að vinna baki brotnu fyrir brauði sínu og sinna og margs þurft að freista í lífsbaráttunni í hálfa öld, síðan hann fluttist alfarinn úr Flatey, eylendu bernskuáranna. Þessa hafa ritstörfin vafalaust bæði notið og goldið. Gáfaður og íhugull maður, sem verið hefir jafn víða „í veri“ og hann, kynnist mörgu og reynir margt, er vert er að forða frá gleymsku. Og það leitar fast á huga þess manns, sem gæddur er mikilli skáldhneigð. En starfsönnum fé- lítils bónda, sjómanns og verkamanns linnir sjaldan, og þess vegna hefir hon- um næsta lítill tími gefizt til þess að láta að löngun sinni og þroska hæfileikana. Verk Theódórs sýna þó, hvað hann hefir megnað. Síðasta bók hans, „í verum," kom út í desembermánuði 1941, ævisaga í tveim bindum. Er það í senn mesta rit hans og sú bókin, er fólk mun lesa með mestri ánægju. Rekur Theódór þar ævi sina frá því, er hann lá í reifum og foreldrar hans tjösluðu honum, ósjálfbjarga snáða, með sér á engjamar og bjuggu um hann i fangahnapp, þegar þau gengu sjálf til verka, og minnir það atferli á Mariu á Knútsstöðum, er „yngsta reifastrangann sinn út í túnið bar,“ eins og Guðmundur Friðjónsson komst að orði í hinu kunna kvæði, „Ekkjan við ána.“ — Nafn bókarinnar er sannnefni, því að sjaldn-

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.