Hlín - 01.01.1955, Qupperneq 143
Hlin
141
ekki vel gott. — Þessu var jeg að velta fyrir mjer, en hvað gat jeg
gert til hjálpar? — Alls ekkert. Alt í einu dettur mjer eitt í hug,
og jeg framkvæmi það á sama augnabliki. — Jeg bið til Guðs um
hjálp handa þeim, sem hlut áttu að máli.
Aðeins litlu síðar hringir síminn. — Jeg hlusta, þá er verið að
tilkynna, að flugvjelin sje snúin við, treystist ekki til að lenda
fyrir norðan sökum dimmviðris, en ætli að taka sjúklinginn og
fljúga svo norður, þegar jelið er gengið yfir.
Jeg get ekki með orðum lýst, hve undrandi jeg varð og jafn-
framt þakklát. — Var bæn minni svarað svona fljótt og á þennan
hátt? — Nú ætla jeg að skjóta því hjer inn í, að jeg hef áreiðan-
lega ekki verið sú eina, sem fylgdist af samúð með atburði þessum,
og jeg efast ekki um, að skyldar hugsanir hafa hreyft sjer í brjóst-
um margra þessa stund.
Flugvjelin settist til að taka sjúklinginn, fór svo norður og tók
þær flughafnir, sem eftir voru, svo beina leið til Reykjavíkur um
kvöldið, og alt gekk vel. — Þegar vjelin settist til að taka sjúkling-
inn, var glaðasólskin og hægviðri, besta stund dagsins. — Þeir sem
hlut áttu að máli, sögðu, að hefði vjelin ekki snúið við, myndi
óvíst að hægt hefði verið að setjast í bakaleið, og sjúklingurinn þá
ekki komist suður í það sinn. — Kona.
Frá Siglufirði er skrifað vorið 1955: — Fjelagsstarfið gengur
sinn venjulega gang, stórtíðindalítið, en fundarsókn er sæmilega
góð. — Þá má það teljast nýlunda, að í fyrravetur tóku nokkrar
fjelagskonur að sjer að hnýta spyrður á skreiðarfiskinn, og gengu
vinnulaunin óskift í Elliheimilssjóð fjelagsins, nam sú fjárhæð
rúmum 4 þúsundum króna og mun verða nær helmingi hærri
þetta ár. — Það er hert mikið af veiði togaranna, svo okkur finst
muna dálítið um þetta, því öll fjáröflun er erfið.
Frá Seyðisfirði veturinn 1954. — I vetur hefur lítið verið unn-
iS í Heimilisiðnaðarfjelaginu, þó höfum við 5 vefstóla í gangi, ef
alt er talið. — Ofið alls á árinu 173 metrar. — Keypt voru 10
kg. af hvítri ull og tekið ofan af henni. Send til vinslu í eingirni í
Ullarverksmiðjuna „Gefjun“. — Ennfremur send til vinslu á
sama stað 7 kg. af togi, sem síðan var unnið i leistaband.
Úr Jökulsárhlíð í Múlaþingi er skrifað veturinn 1955: — Það
hefur gengið vel með vefnaðinn. Við vorum svo hepnar að geta
fengið stúlku í hreppnum til að festa upp vefinn og segja til. Það
eru bara 4 vefstólar til í hreppnum, en nú er verið að vefa í þeim
ollum. — Ur tvistinum, sem þú útvegaðir okkur, eru gluggatjöld,
tveir vefir, þau verða mjög ódýr, þegar vinnan er ekki reiknuð,
er> þær vefa sjálfar konurnar eða dætur þeirra. Ef til vill verður