Melkorka - 01.09.1949, Qupperneq 5

Melkorka - 01.09.1949, Qupperneq 5
var byggt á hugmyndalífi og reynslu 19 ára unglings, ég hafði ekki fylgzt með auðgun máls og framþróun þjóðlífs síðustu 30 ár heima í Noregi. Orðaforði minn var tak- markaður, hugmyndalífið fátæklegt, ég var eins og fullorðinn maður klæddur í föt af barni, og svona veit ég að hefur farið fyrir háttsettum mönnum, lærðum vel, sem heirn hafa komið.“ ,.Hver eru þau innri verðmæti, sem við horfumst í augu við í baráttunni fyrir því landi, sem var land föður og móður? Sá veruleiki er heild, sem samanstendur af óteljandi smámunum og smáatvikum. Þú sér fyrir þér lítinn fugl, sem tístir utan við gluggann, einu sinni í barnæsku þinni. Faðir þinn kemur í lilaðið einn góðan veð- urdag eftir langa burtveru. Þú liefur legið veikur og móðir þín beygir sig yfir þig í rúminu. Þú liggur andvaka hvassveðurs- nótt. Þrösturinn syngur. Þú ferð að heiman í fyrsta sinn. Litli hvolpurinn, sem þér var gefinn. Fyrsti vordagurinn. Vegurinn, sem liggur framhjá heimili foreldra þinna. Borðið, sem þú sazt við, þegar þú byrjaðir sjálfur að borða með þinni eigin skeið. Fyrstu haustsnjóar. Þetta allt er heimur, sem tilheyrir þér einurn, og þú þolir ekki að skilningssljóir, framandi menn trarnpi þar um á þungum stígvélum. Að vísu geta þeir ekki stolið þessum heimi þínum frá þér, en þeir geta saurgað liann og það er enn verra.“ „’Eitt er það, sem við höfum lært af her- námi Þjóðverja: Mennirnir eru betri en þeir héldu sjálfir. Það getur verið erfitt að halda í trúna, þegar við stöndum andspæn- is óþokkaskap einstaklinganna, en þrátt fyrir það hefur mannkynið sagt: Hingað og ekki lengra. Tökum t. d. vald áróðursins, hin almátt- ugu dagblöð, sem öllu geta ráðið í þjóðfé- laginu. Nasistarnir trúðu því, eins og aðrir, að svo væri. En væri það satt, hefði öll norska þjóðin orðið nasistar. Dagblöðin eru ekki einvöld. Við í Noregi trúðum því einu SIGRÍÐUR EINARS: Landhelgi Hafbldmans helgi vafið hvítra jöklanna land. Þar sem pitt gull er grafið gnauðar báran við sand. Vafiið sólhlýjum vindum varið áscelni skalt, laugað blátœrum lindum land mitt, en engum falt. Alfrjáls eign þinna barna undranna stórbrotna land. — Enn skín pin ástarstjarna, enn ris bára við sand. V__________________________________) sinnii, eins og aðrir, að dagblöðin gætu varið hvaða málstað sem væri, og feng'ið fólk til að trúa sér. Nasistarnir í Noregi fengu vald yfir öllum blöðum landsins og tímaritum. Útvarpið var á þein-a valdi. Þeir fluttu þjóðinni þann áróður, sem þeim sýndist, en hvað varð þeim ágengt? Ekki einn þumlung komust þeir áfram með þjóð- ina, þrátt fyrir öll þessi tæki. Það eru til þær hindranir, sem ekki er hægt að yfir- stíga. Sá, sem reynir það, ber aðeins liöfð- inu í vegg, sem hann kemst ekki yfir.“ Látum oss vona, að ást vor íslendinga á föðurlandi og móðurmáli reynist einnig svo sterk, að þau öfl, sem hér vinna að niðurrifi þessa hvors tveggja, mæti þeim múr, sem ekki verður brotinn eða niður rifinn. MELKORKA 45

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.