Melkorka - 01.09.1949, Síða 17

Melkorka - 01.09.1949, Síða 17
grænir skógar, sem hann lofar henni, lield- ur óvissan sjálf. Katinka vísar því á bug, hún ráfar aftur í sömu kvörnina sem fyrr, eftir að liafa, að því er virðist, sóað tveim dögum í tilgangsleysi. En margt hefur verið sagt og mikið hefur gerzt á þessum tímum. Og eitthvað hlýtur að falla í góðan jarðveg, því held ég að einnig Cora Sandel trúi, þrátt fyrir tor- tryggni hennar. Hún sagði við einn vina sinna • skömrnu fyrir frumsýninguna á Kranes konditori í Stokkhólmi, að hún gerði sér enga von um að leikritinu yrði vel tekið, en ef þeir fáu vinir hennar, sem í salnum væru, klöppuðu, þá væri hún sjálf ánægð. (Greinin er rituð fyrir Melkorku, en þýdd af J. O.) MYNDVEFNAÐURINN NÝI Eftir AuÖi Sveinsdóttur KóngshöfuÖ ur Peter Dass-teppinu Myndvefnaður er vaknaður til lífsins aftur og stendur með blóma í mörgum lönd um. Nútímastórhýsi, opinberar byggingai og kirkjur eru nú skreyttar nýjum mynd- ofnum tjöldum. í löndum þar sem teppa- vefstofur liafa sofið þyrnirósarsvefni í heila öld eða lengur er nú hafið starf á ný, einsog í Frakklandi og Belgíu. Þessi endurvakning á langan aðdraganda. En árið 1933 markar spor í sögu myndvefn- aðarins. Þá er það sem franska merkiskon- an frú Cuttoli, forstöðukona vefstofanna í Aubusson skorar á lielstu málara parísar- skólans, sjálfa heimsmálarana, til samvinnu við sig og vefstofur sínar. Meðal þeirra sem urðu að óskum liennar voru meistarar eins- og Braque, Picasso, Rouault, Miro, Leger, Lur^at og fleiri. Fyrirmyndir sínar máluðu þeir með olíulitum á léreft, að undantekn- um Lurgat og Miro; þeir útbjuggu fi'umdrögin á pappaspjöld líkt og tíðkast um vinnuteikningar að handavinnu. Tepp- ■in voru svo ofin og sýnd í París, London og New York, en árangurinn var misjafn. Það kom í ljós að Lur$at einn skildi til fulls að mynddúkurinn liefur sín lögmál fyrir sig og listvefnaður og málaralist eru sitt hvað. Lur^at hefur langa reynslu að baki sér, því þegar 1915 lætur hann vefa eftir fyrsta vinnuspjaldi sínu. Lur^at og annar fransk- ur listamaður á þessu sviði, ekki síðri, Gro- maire, liafa á undanförnum árum, bæði í stríðinu og eftir stríð, haft nána samvinnu við vefstofurnar í Aubusson. Þeir eru nú heimsmeistarar þessarar endurvöktu list- MELKORKA 57

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.