Valsblaðið - 01.05.1993, Side 14
auki þjálfar Ingi Rafn 6. flokk pilta ásamt
Þórði Sigurðssyni. Stundaskráin er
ákaflega stíf hjá systkinunum, fátt annað
kemst að en að sækja skólann, lesa
námsbækur, stunda æfingar og keppa. “Ég
horfi að minnsta kosti ekki mikið á
sjónvarp,” segir Kristjana. A síðasta ári
tók Ingi Rafn sér eins árs hlé frá námi sem
kom sé ágætlega þar sem nóg var að gera
í handboltanum. “Ég veit ekki hvernig
farið hefði með námið þar sem úrslita-
keppnin var fram í miðjan maí,” segir
hann. Hrund sem er á síðasta ári í
hjúkrunarfræði í Háskólanum bætir við:
“Ég var bara áhangandi og svo einnig í
prófum og þetta var meira en nóg fyrir
mig.”
Guðrún er bamakennari og ég spurði
hana því hvort ekki væri fulllangt gengið
þegar íþróttimar væm beinlínis famar að
tefja bömin frá náminu. Hún svarar:
“Þetta gefur börnunum óskaplega
mikið, þau leggja mikið á sig og fá mikið
í staðinn. Félagsskapurinn er góður og það
verða yfirleitt bestu vinimir sem maður
hefur staðið í þessu stússi með. Bömin
læra líka mikið á þessu, læra að taka tillit
til annarra og að vinna með öðmm, fyrir
svo utan alla hreyfinguna. I starfi mínu
sem sérkennari vinn ég mikið með
misþroska börn og þar er lögð mikil
áhersla á hreyfiþjálfun, samhæfingu,
jafnvægisæfingar og fleira. Þetta hefur
heilmikið að segja fyrir námsárangur
barnanna. Og ég hef séð það á mínum
börnum, að þó að handboltinn taki
stundum tíma frá náminu þá koma þau
oftast endumærð heim af æfingum.”
Nú fer Ingi Rafn, sem er 23 ára, að
nálgast 200 leiki í meistaraflokki og
Kristjana er orðin fastur leikmaður í
meistaraflokkshópnum, aðeins 17 ára
gömul. Samanlagt eru Jón og börnin
komin vel yfir fimm hundruð leiki og það
er engin goðgá að segja að ef til vill verði
þetta fyrsta Valsíjölskyldan sem nær yfir
þúsund leikjum samtals í meistaraflokkum
í handbolta. Já, svona eiga Valsfjölskyldur
að vera!!!
Valskórinn syngur fyrir Lollapottsfélaga
V axandi
starfsemi
vegum
félagsmálaráðs
Félagsmálaráð Vals hefur það að
markmiði að efla annað félagsstarf innan
Vals en keppnisíþróttir og að auka
þátttöku álmennings í störfum félagsins.
Ráðið hefur á liðnu ári lagt áherslu á að
koma af stað eða styðja við starf
áhugahópa um ýmiss konar tómstundaiðju
á Hlíðarenda. Ymsir liðir eru orðnir fastir
í sessi á vetrardagskránni ■ vikulega eða
oftar: Danskennsla, pílukast, beinar
útsendingar frá ensku knattspyrnunni,
söngæfingar Valskórsins og gönguferðir
og skokk um Öskjuhlíóarsvæðið.
Skákkvöld eru mánaðarlega og bridgemót
er á dagskránni síðar í vetur. Einnig er
rétt að minnast á líflega laugardags-
morgna þar sem getraunanefnd Vals hefur
opið hús fyrir tippara og aðra sem vilja
þiggja kaffi og með því, spjalla saman,
gripa i tafl eða spil og spá i næstu umferð
í ensku og ítölsku deildunum.
Félagsmálaráð sér um útgáfu
fréttabréfs Vals nokkrum sinnum á ári.
Ætlunin er að reyna að fjölga útgáfu-
dögum og flytja þannig sem ferskastar
fréttir af starfseminni, bæði á vegum
félagsmálaráðs og í deildunum þremur,
handknattleiks-, knattspymu- og körfu-
knattleiksdeild. Þá er í bígerð að dreifa
fréttabréfinu i öll hús í næsta nágrenni
Hlíðarenda til að efla tengsl Vals við
íbúana. Vonast er til að sem flestir geti
fundið tómstundastarf við sitt hæfi á
Hlíðarenda, einnig þeir sem ekki hafa áður
stundað íþróttir eða starfað undir merkjum
Vals.