Valsblaðið - 01.05.1993, Side 30

Valsblaðið - 01.05.1993, Side 30
Valsmaður að vestan Frá því að Þorgrímur Þráinsson gekk í raðir Valsmanna á áttunda áratugnum, hefur Ólafsvík skipað sérstakan sess hjá knattspyrnudeildinni. Var Þorgrímur ófeiminn við að halda merki staðarins á lofti og er m.a. að minnast eftirminnilegrar helgarferðar meistaraflokksins á söguslóðir Þorgríms á Snæfellsn.esi. Eftir að hann lagði skóna á hilluna tók annar Ólsari við merkinu, en það er að sjálfsögðu Steinar Adolfsson. Steinar hefur spilað undir Valsmerkinu ffá árinu 1986 er hann kom að vestan og hóf aó leika með 3. flokki. Hann hefur verið fastur maður í Meistaraflokki frá árinu 1990, og spilað yfir 100 leiki. Við hittum Steinar að máli i Valsheimilinu og segir hann nú frá. Ólafsvíkurárin Það var mikið um að vera í íþróttum þegar ég var að alast upp. Mikill áhugi var og var stundað aðallega knattspyrna og körfubolti, og snerist allt okkar líf um íþróttir. Margir íþróttamenn ,bæði körfu - og fótboltamenn frá Ólafsvík hafa gert það gott í íþróttum annars staðar, eins og t.d. Þorgrímur, Magnús Stefánsson (FH), Atli Alexandersson (FH), Logi Úlfljótsson (Þróttur), Þá má nefna að Helgi Kristjánsson, núverandi ffamkvæmdastjóri knattspymu- deildardeildar Vals var mjög virkur í félagsstarfinu fyrir vestan, bæði sem leikmaður, þjálfari og framkvæmdastjóri. Þessum mönnum, sem eru allir nokkru eldri en ég, fylgdist ég með á knattspymuvellinum er þeir voru að leika. Það má segja að eftir að Þorgrímur fór VALS blaðið 30

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.