Valsblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 38
YNGRIIÐKENDUR
Texti: Hanna Katrín Friðriksen
Sonja
Jónsdóttir
Leikmaður með 2. flokki og
meistaraflokki í handbolta
Sonja er ein af þeim efnilegri í
handboltanum í Val og þó víðar væri
leitað. Hún er 17 ára gömul, á yngra ári í
2. flokki og á að baki nokkra unglinga-
landsleiki. A síðasta keppnistímabili var
Sonja i hinum sigursæla 3. flokki sem
vann þrennuna með glæsibrag, varð
Reykjavíkur-, Bikar- og Islandsmeistari.
I ár gengu flestar stúlkumar upp í 2. flokk
og ætla greinilega að halda áfram
sigurgöngunni þar. „Við unnum
Reykjavíkurmótið nú í haust og urðum í
2. sæti í 1. deild í síðustu “tumeringu.”
Þar era erfíðustu keppinautamir Haukar
og Víkingur, en við eigum ágætis mögu-
leika þó Haukastelpurnar séu allar árinu
eldri en við.”
Þjálfari Sonju undanfarin ár hefur
verið Mikhail Akbachev. “Hann er mjög
góður, sérstaklega hvað varðar tækni-
æfingar. Það er samt nauðsynlegt að vera
með aðstoðarmann með honum til að sjá
um búningamál og fleira. Það hefur verið
aðeins of mikið skipulagsleysi í kringum
þau mál hjá okkur,” segir Sonja.
Undanfarin tvö ár hefur Sonja æft
með meistaraflokki kvenna og í vetur
hefur hún náð að vinna sér sæti í byrjunar-
liðinu i vinstra horninu. Aðspurð um
fyrirmynd i handboltanum nefnir hún
annan hornamann sem gerði garðinn
frægan með Val og landsliðinu, Jakob
Sigurðsson. “2. flokkurinn æfir með
meistaraflokki og fær síðan 1-2
séræfingar á viku þannig að ég æfi svona
5-6 sinnum í viku. Það eru mikil viðbrigði
að spila með meistaraflokki því það er
miklu meiri hraði og harka þar. Það hefur
ekki gengið nógu vel í meistaraflokki í
vetur enda eru margar hættar frá því í
fyrra. ‘Eg held þó að framtíðin sé björt
hjá félaginu.” - Hvað með framtíðina hjá
þér? ‘“Eg held bara áfram að æfa og
auðvitað set ég markmiðið sem hæst, er
það ekki að komast í landsliðið? Annars
gefst lítill tími fyrir önnur áhugamál en
handboltann með skólanum,” segir Sonja,
en hún er á 2. ári í MH.
Matthías
Guðmundsson
Leikmaður með 4. flokki í
fótbolta og handbolta
Matthías er tólf ára. Hann byrjaði að
æfa fótbolta hjá Val níu ára og æfir nú í
vetur ijórum sinnum í viku hjá Kristjáni
Halldórssyni þjálfara í 4. flokki þar sem
hann er á eldra ári. „Eg er ánægður með
þjálfarann og hópurinn er stór og góður.
Hins vegar mættu strákamir á yngra árinu
mæta betur á æfingar. Okkur gekk ekki
alveg nógu vel í sumar og komust ekki í
úrslit í Islandsmótinu. Við stefnum bara
að því að gera betur næsta sumar,” segir
Matthías sem spilar sem framherji og
hefur oft gengið betur að skora mörk en
síðasta sumar. Fyrirmyndin í fótboltanum
er Maradonna.
Matthías lætur sér ekki nægja að
sparka bolta. Hann æfir líka handbolta og
þá að sjálfsögðu með Val þar sem hann er
á yngra ári í 4. flokki. Þar er þjálfarinn
hinn rússneski Mikhail Akbachev.
“Mikhail er rosalegur góður þjálfari
sem kennirmanni mikið,” sagði Matthías,
en hann leikur í vinstra hominu í hand-
boltanum. Þar er fyrirmyndin Valdimar
Grímsson. - Hvort er nú skemmtilegra
að spila fótbolta eða handbolta. „Eg ætla
að æfa báðar íþróttagreinamar eins lengi
og ég get, en ég að ef ég þyrfti að velja
yrði fótboltinn ofan á.”
Aðspurður um aðstöðuna og unglinga-
starfið hjá Val sagðist Matthías vera mjög
sáttur. Vinir hans er margir í boltanum í
Val og mórallinn er finn. „Ætli Valur sé
ekki bara besta félagið til að vera í.”
Bjarni Þór
Pálsson
Leikmaður með 7. flokki í
körfubolta
Bjarni er tólf ára og hefur æft
körfúbolta i Val í tvö ár. Hann segir að þó
að flokknum hans hafi ekki gengið mjög
vel til þessa sé hópurinn efnilegur og til
alls líklegur í vetur undir stjóm þjálfarams
Sigvalda Ingimundarsonar. “Við setjum
alla vega markið hátt og stefnum að því
VALS blaðið 38