Valsblaðið - 01.05.1993, Page 39

Valsblaðið - 01.05.1993, Page 39
að verða Reykjavíkur- og íslands- meistarar.” Langtímamarkmiðið hjá Bjama er að komast í meistaraflokkinn hjá Val og landsliðið og til þess að eiga möguleika á því æfír hann vel og samviskusamlega. Tveir leikmenn eru hans helstu fyrir- myndir í körfuboltanum. Annar er í Val, Frank Booker hinn bandaríski þjálfari og leikmaður með meistaraflokknum og hinn leikur í NBA-deildinni í Bandaríkjunum. Það er Shaqual O'Neill. - Hvað með önnur áhugamál Bjami? „Ég fylgist með fótbolta og körfubolta en æfi bara körfuboltann enda er hann skemmtilegastur.” Bjarni segist vera ánægður með unglingastarfið í félaginu og aðstöðuna að flestu leyti en vill þó koma því á framfæri að það mætti bæta sturtuaðstöðuna í gamla húsinu. Tómas Ingi Helgason, Ólafur Thors og Arnar Guðnason Leikmenn með 6. flokki í handbolta 6. flokkur karla í handknattleik æfír þrisvar í viku undir handleiðslu þjálfaranna Inga Rafns Jónssonar og Þórðar Sigurðssonar. Tómas Ingi er tíu ára og því á eldra ári í 6. flokki. Hann er markmaður í A- liðinu og segir Geir Sveinsson og Guðmund Hrafnskelsson vera uppáhalds- leikmenn sína en ætlar samt að með tímanum að taka sæti Guðmundar i marki meistaraflokks Vals og í landsliðinu. „Ég er búinn að æfa handbolta með Val í 3 ár. Fyrsta árið bjó ég á Skúlagötunni, en nú er ég fluttur upp í Árbæ. Ég held samt áfram að æfa með Val því það er besta félagið. Pabbi og afí eru duglegir að keyra mig á æfíngar.” Ólafur Thors er níu ára og því á yngra ári í 6. flokki. Hann er líka markmaður og stendur í marki B-liðsins eins og er. Ólafur setur markið hátt líkt og Tómas Ingi. Hann á sömu uppáhalds- leikmenn og ætlar að berjast við Tómas Inga um stöðu Guðmundar Hrafnkels- sonar eftir einhver ár. „Ég er búinn að æfa handbolta í tvo ár. I fyrra var ég líka í fótboltanum en nú er ég hættur því. Handboltinn er skemmtilegri.” Amar Guðmundsson byrjaði að æfa handbolta fyrir nokkrum vikum, en áður hafði hann prófað bæði fótbolta og körfubolta hjá Val. Hann ætlar nú að einbeita sér að handboltanum en hefur samt alltaf gaman af því horfa á NBA- körfuboltann. Arnar leikur sem skytta hægra megin fyrir utan og er ánægður með þá stöðu enda segja félagarnir að hann sé góður skotmaður og bestur í langskotunum. Uppáhaldsleikmaður Arnars er önnur góð skytta, Sigurður Sveinsson. Strákarnir líta björtum augum á ffamtíð flokksins í handboltanum og segja stefnuna setta á að vinna titla sem fyrst. Þeir eiga reyndar einn bikar í bikarskáp Vals, en það er prúðmennskubikar sem þeir unnu fyrir tveimur ámm. I vetur hefur leiðin legið upp á við. A-liðið lenti t.d. í 2. sæti á sterku HK-móti og B-liðið i 3. sæti. Tinna Sigurðardóttir Leikmaður með stúlknaflokki í körfubolta Tinna er 11 ára nemandi í Hlíðaskóla. Hún er nýbyquð að æfa körfu- bolta með Val, mætti á fyrstu æfinguna síðastliðið haust. Hún segir að æfíngamar séu skemmtilegar og ber Jenný þjálfara vel söguna en segir hins vegar að of fáar stelpur séu á æfingum. „Ég kom með tveimur vinkonum mínum á æfingu og er að reyna að draga fleiri með. Siðan em reyndar alltaf að bætast aðrar stelpur við og hópurinn er að stækka. Liðið er búið að keppa einu sinni í vetur í Grindavík en það gekk nú ekki vel. Það varð einhver ruglingur og við kepptum við of gamlar stelpur í hinum liðunum og töpuðum öllum leikjunum. I desember eigum við að keppa aftur. Þá verða jafngamlar stelpur í hinum liðunum og við ætlum að standa okkur betur.” Tinnu þykir ekki erfítt að hitta í körfuna en ætlar samt að æfa vel til að verða miklu betri. Hún æfir nú þrisvar í viku og stefnir að því að leika með meistaraflokki þegar hún verður eldri. Hún á engan uppáhaldsleikmann i körfuboltanum en ætlar sjálf að verða best. Tinna segir þó að það geti verið að Jenný þjálfari verði uppáhaldsleikmaðurinn þegar hún fer að spila með meistaraflokki kvenna í Val eftir áramót. VALS blaðið 39

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.