Valsblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 43
Þegar Guðmundur er ekki að láta
henda í sig bolta má sjá á honum
nýjar hliðar. Hann sér til dæmis
alfarið um húsverkin þessa dagana
þar sem Valdís varð fyrir því að
óhappi að axlarbrotna fyrir stuttu.
Valdís segir að hann standi sig svo vel
að til greina komi að hanna
verkaskiptingu heimilisins upp á nýtt.
kunnur Valsmaður, Einar Þorvarðarson,
að flækjast íyrir honum en frá árinu 1990
hefur Guðmundur verið aðalmarkvörður
landsliðsins. „Fyrsti stórleikurinn minn
var úrslitaleikurinn í B-keppninni í Frakk-
landi þegar Einar meiddist og við unnum
gullið. ‘I A-keppninni í Tékkoslóvakíu
árið eftir var Einar með en það má segja
að ég hafi verið byrjaður að taka við. Það
var erfitt að koma þama inn enda hafði
Einar verið mjög lengi fyrsti markvörður
landsliðsins. Það var í þessari keppni sem
markvarslan var ekki nógu góð, frekar en
margt annað í leik liðsins. Þetta var síðasta
stórkeppnin þar sem Bogdan var við
stjómvölinn og það var komin ákveðin
þreyta í hópinn. í B-keppninni árið 1992
var Þorbergur tekinn við liðinu og Einar
Þorvarðar var honum til aðstoðar. Þar
unnum við okkur aftur sæti meðal A-
þjóða.”
Tíminn frá því að Þorbergur og Einar
tóku við landsliðinu hefur verið mjög við-
burðarríkur. Landsliðið hefur verið á ferð
og flugi og markvarslan er Guðmundi
eðlilega ofarlega í huga. „Á þeim stór-
mótum sem landsliðið hefur tekið þátt í
frá Tékkoslóvakíu 1991 hefur mark-
Þegar
sumarfríið
loksins kom
var það notað
vel.
Guðmundur
kvæntist
unnustu sinni
Valdísi
Arnarsdóttur
ogá
brúðkaups-
myndinni er
einnig sonur
þeirra Arnar
varslan frekar
staðið upp úr ef
eitthvað er. Það
kom upp ákveðið
vantraust fyrir B-
keppnina í Austur-
ríki 1992 en ég held
að við höfum staðið
það af okkur. Eg tel
að síðan hafi
markvarslan ekki
verið vandamál hjá
liðinu.
Sumarið eftir
keppnina í Austur-
ríki komu Olympíu-
leikar sællar minn-
ingar þar sem ís-
lenska landsliðið
náði besta árangri
sínum fyrr og síðar,
tjórða sætinu. Síðan
tók við erfið deildarkeppni hér heima og í
henni miðri heimsmeistarakeppnin í
Svíþjóð. „Þetta hefur verið mikið álag og
það má segja að
frá því í Austur-
ríki hafi lífið
verið hand-
bolti,” segir
Guðmundur.
Síðastliðið
sumar fékk
hann þó kær-
komið sumarfrí,
það fyrsta í sex
ár. Það var því
um að gera að
nota fríið vel og
Guðmundur
gekk í það heil-
aga með unn-
ustu sinni Val-
dísi Arnars-
dóttur. „Þetta
hefur verið lengi á stefnuskránni en aldrei
unnist tími til þess að láta verða af því
fyrr en í sumar,” segir Guðmundur sem á
með Valdísi soninn Amar.
Aðspurður um væntingar til Vals-
liðsins í vetur segir Guðmundur að vissu-
lega sé stefnan sett á að verja stóru titlana
tvo. „Það er þó alltaf erfitt að verja titla
og vera það lið sem andstæðingamir vilja
helst vinna. Við eigum hins vegar alla
möguleika á að standast þá pressu. Þetta
er erfið áskorun en að sama skapi
skemmtileg,” segir Guðmundur sem tel-
ur að helstu andstæðingamir í vetur verði
Haukar, FH og jafnvel Víkingar.
- Að loknu eftirminnilegu tímabili
hjá Val síðasta vetur hurfu þrír af
burðarásum liðsins á braut. Geir
Sveinsson fór aftur til Spánar í at-
vinnumennskuna, Valdimar Grímsson
gekk til liðs við KA og Jakob Sigurðsson
lagði skóna á hilluna. Það hefur ekki
hvarflað að þér að breyta til? „Eins og er
sé ég ekki fyrir mér annað félag hér á landi
sem ég vildi frekar leika með. En þó ég sé