Bjarmi - 01.03.2004, Qupperneq 9
af fólki, fólki sem kom óboðið.
Þegar ég vaknaði minntist ég
þessarar setningar, ég þurfti ekki
að taka öll verkefnin sem mér
stóðu til boða, ég átti að ein-
beita mér að Ólafíu. Heilagur
andi og Jesús Kristur hafa fylgt
mér í vinnunni allri. Þar fyrir
utan hefur ótrúlegasta fólk rétt
mér hjálparhönd og veitt mér
nýja sýn inn i líf þessarar konu.
Eg finn mikinn samhljóm í trú
hennar. Þessi frábæra setning er
frá Ólafíu: „Að deyja er eins og
aö hátta upp í hreint rúm beint
komin úr baði að loknu dagsverki
kvöldið fyrir páskadag."
Hvað getur þú sagt okkur
um œsku Ólafiu?
Ólafía fæddist árið 1863 og bjó
fyrstu árin á Mosfelli. Þar var fað-
ir hennar, Jóhann Knútur Bene-
diktsson, prestur, en hann var
drykkjumaður. A Mosfelli varö
messufall vegna þess aö prestur-
inn var drukkinn og biskup þurfti
að setja ofan í við hann. Þetta
kemur fram í leikritinu. Hún er þvi
alin upp á drykkjumannsheimili en
báðir afar hennar voru einnig
alkóhólistar. Ólafía fluttist síðan
til Viöeyjar og móðirin kom börn-
unum til manns. Drykkjuskapurinn
setti sitt mark á Ólafíu. Hún virð-
ist hafa ákveðið að rísa gegn
þessu, drekanum sjálfum, og helg-
aði mikið af kröftum sínum því að
berjast gegn áfengisvandanum.
Hún vildi ekki lenda i sporum eða
böli móðursinnar. Hún vissi líka
aö hún myndi trúlega dragast að
alkóhólistunum. Hún átti sérstakt
samband við frænda sinn, Einar
Benediktsson, þeirra á milli var
gagnkvæm ást, en sú ást átti sér
ekki von vegna drykkjuskapar Ein-
ars. Það má segja að síðan hafi
ást hennar verið yfirfærð á fólkið
sem hún þjónaði.
Hvers varðst þú visari i Noregi?
Að sjálfsögðu varð ég margs vís-
ari. Ég hafði miðstöð á þessu
heimili og eftir dvölina þar ferð-
aðist ég til Norður-Noregs, til Ytt-
eroy. Þar dvaldi Ólafía i þrjú ár. En
ýmislegt hafði gerst á undan því.
Hún var fyrst hér heima og mikiö
afrek hennar var að ferðast um
allt ísland fyrir Góötemplararegl-
una. Hún þurfti að sjá fyrir sér og
fékk vinnu hjá vátryggingarfyrir-
tækinu Star sem seldi tryggingar.
Hún var með skrifstofu hér og
fékk í tengslum við það styrki til
að fara til útlanda. Hún ferðaðist
fyrir regluna, hélt ræður í kirkjum,
stofnaði stúkur sem fuku upp hér
hver af annarri fyrir hennar til-
stilli. Hún var einnig tengd heima-
trúboðsstarfi Sigurbjörns Á. Gisla-
sonar og Friðriks Friðrikssonar, en
báðir ferðuðust þeir um landið,
ekki síst Sigurbjörn. Henni fannst
hún hins vegar ekki þess verð að
vera með þeim.
Fyrsta sinnið sem hún var með
þeim og hélt ræðu bað hún við-
stadda um að hjálpa sér að biðja
upphátt, hún gæti það ekki sjálf.
Þannig var hún alltaf heiðarleg.
Sigurbjörn taldi hana mælskustu
konu á íslandi og það var mikill
fengur fyrir hann og Friðrik Frið-
riksson að hafa hana með sér.
Góðtemplarareglan var eina al-
þýðlega reglan á þessum tíma þar
sem allir komu saman, allar stétt-
ir. Konurnar ætluöu að þurrka upp
landið, þær fengu vínbannið í
gegn á sínum tíma. Síðan var
annað afrek sem hún og Ingveldur
Guðmundsdóttir kaupmanhsfrú
unnu saman. Þær stóðu fyrir utan
helstu krá bæjarins, Svinastíuna,
og stöðvuðu alla sem þar ætluðu
inn og reyndu að tala um fyrir
þeim. Sigurbjörn Á. Gíslason og
Indriði Guðmundsson stóðu á
næsta horni og fylgdust með
stúlkunum að allt væri í lagi, en
vildu ekki láta sjá sig þarna fyrir
framan.
Þá varð til þessi vísa eftir
óþekktan drykkjumann:
Þegar ég hér stíg á strönd,
stendur á milli vina,
Ólafía á aðra hönd
og Ingveldur á hina .
Þetta gekk vel hjá þeim því
kráareigandinn fór í mál við þær,
en þær unnu máliö. Þetta var
mikið afrek unnið af konum i bæ
sem var orðinn svo gegnsósa af
víndrykkju að þegar fyrsta verka-
lýðsfélagið var stofnaö var leitað
til reglunnar, það þurfti að þurrka
bæinn til að verkamennirnir gætu
unnið vinnuna sína.
Hvað veistu meira
um samband Ólafiu og Friðriks?
Friðrik Friðriksson og Ólafía skrif-
uðust mikið á. Bréfin á milli þeirra
eru svo falleg, vinátta þeirra var
einlæg og hrein. Hún hughreysti
hann þegar hann var að missa
móðursína, en sjálfvissi hún að
fólk gat misst þolinmæðina og
dæmt sjálft sig fyrir kærleiksleysi
ef það gat ekki uppfyllt allar óskir
ástvinar síns. Hún virðist hafa
Heilagur andi og Jesús Kristur hafa
fylgt mér í vinnunni allri. Þar fyrir
utan hefur ótrúlegasta fólk rétt mér
hjálparhönd og veitt mér nýja sýn inn
í líf þessarar konu. Ég finn mikinn
samhljóm í trú hennar.
verið trúnaðarvinur Friðriks og út-
skýði fyrir honum að að þetta
væri erfitt. Þetta var einlæg vin-
átta þar sem fólk þorði að viður-
kenna veikleika sinn. Ólafía var á
meðal þeirra sem Friðrik fékk til
að sjá um KFUK starfið í byrjun
þar sem hann treysti sér ekki til
þess sjálfur.
Héðan hélt Ólafia siðan til
Kanada og var þá trúuð eins og
fólk flest var á þeim tima. Hún
haföi velt fyrir sér sannindum
kristindómsins en talar um að það
hefði verið eins og alltaf vantaði
eitthvað upp á. En þar vestra varö
hún fýrir sterkum trúarlegum
áhrifum. Hún hafði reynt að lesa í
bók eftir Charles Spurgeon sem
9