Bjarmi - 01.03.2004, Page 24
Kristín Sverrisdóttir
Hugleiðing
Krossinn þinn
Hann var meö kross um hálsinn.
Hann trúði á Quö. Hann glímdi við
vanda. Hvað átti hann að gera?
Hann var spurður: „Hefur þú
beðið Guö um að hjálpa þér?"
„Nei" var svarið. Það haföi honum
ekki dottið í hug.
Hvaöa þýðingu hefur krossinn
fyrir þig? Er hann verndargripur?
Merki um kristna trú? Eða eitt-
hvað annaö og meira?
Manstu eftir frásögunni úr
Gamla testamentinu (4. Mósebók
21) í Biblíunni þegar Guð sendi
eitraöa höggorma sem bitu fólkið
í eyðimörkinni þegar Israelsmenn
höfðu möglað og brotið af sér?
Ástandið var slæmt. Móse leiðtogi
þeirra var kallaður til. Hvaö var til
ráða? Guð sagði Móse að gera
eirorm og setja á stöng og allir
sem litu upp á eirstöngina skyldu
halda lífi. Bara ef þeir vildu líta
upp gætu þeir bjargað lífi sínu.
Þeir uröu að treysta þessum orð-
um. Þeir sem geröu þaö héldu lífi.
Stundum er sagt aö eirormur-
inn og stöngin líkist krossi Jesú
Krists. Hann er sonur Guös sem
fæddist sem litið barn, ólst upp
við guösótta og góöa siöi og varö
fulltíða maður. Hann vann verk
Guðs á jörðinni. Hann var dæmdur
til að deyja á krossi og reis upp
frá dauöum. í þessu liggur leynd-
ardómur kristinnar trúar.
Krossinn opinberar kærleika
Guös til mannanna: „Guð auðsýnir
kærleika sinn til vor, þar sem
Kristur er fyrir oss dáinn meöan
vér enn vorum í syndum vorum"
skrifar Páll postuli í Rómverjabréf-
inu (5.8). Krossinn er einnig merki
um friðþægingu fyrir syndir
mannanna sem sýnir elsku Guðs
til sköpunar sinnar. „Þetta er kær-
leikurinn: Ekki að vér elskuöum
Guö, heldur aö hann elskaöi oss
og sendi son sinn til að vera friö-
þæging fyrir syndir vorar" (1. Jóh.
4.10). Án krossins er engin kristin
trú. Hann er merki trúarinnar,
vonarinnar og lifsins.
Kristnir menn eru merktir
krossinum í skírninni og þegar viö
signum okkur gerum viö kross-
mark á okkur. Þaö er góður siður.
Venjum okkur á að merkja okkur
Kristi daglega og fela honum líf
okkar. Við erum krossmenn, Krists-
menn og kóngsmenn sem erum
helguð honum.
Öllum mönnum er boðið að
koma aö krossi Krists og fela hon-
um líf sitt. Passíusálmar Hallgríms
Péturssonar geyma margar perlur.
Hann segir í 24. sálmi:
Burt tók Jesús þá blygðun hér,
beran því lét sig pína,
réttlætisklæðnaö keypti mér,
kann sá fagurt að skína.
Athvarf mitt jafnan er til sans
undir purpurakápu hans
Þar hyl ég misgjörö mína.
(Passíusálmur 24.3)
Jesús hefur keypt réttlætis-
klæönaö fyrir alla sem vilja þiggja.
Hvaö er betra en eiga skjól undir
purpurakápu hans þar sem mis-
gjörð manns er falin? Jesús Kristur
heyrir allar bænir og óhætt er að
fela honum alla hluti og vanda.
Fær hann aö vernda, leiða, blessa
og frelsa þig? Fær hann að vera
meira en verndargripur þinn?
Höfundur er náms- og starfsráðgjafi.
24