Bjarmi - 01.03.2004, Síða 28
svolítiö. Þaö voru ekki mjög marg-
ir á því fyrsta, en síðar fjölgaði
mjög mikiö og mest voru tæplega
100 þátttakendur. í minum huga
eru fjórir höfuðvaxtarbroddar í
þjóökirkjunni í dag, flestir fara
nokkuð leynt: Alfa, 12 spora nám-
skeiðin, kyrrðardagar og Lúthersk
hjónahelgi.
HvaO er þaö sem hefur haft mest
áhrifá trúarlífykkar?
M: Það er af svo mörgu að taka,
mér finnst t.d. spennandi hvernig
Guð leiðir og hefur gert í gegnum
árin. Annars í seinni tíð finnst mér
friður Guös og kyrrðin og aö hvíla
í næveru hans vera mér mjög
mikilvægt. Það hefur haft mikil
áhrif á mig. Þar hef ég upplifað
Guö á nýja og dýpri hátt. Þar hef-
ur Guö mætt mér persónulegra en
áöur. Ég get talað viö hann og
hann til min. Einmitt þegar ég hef
hvílt í friði hans og nærveru þá
hefur Guö mætt mér og ég fundiö
hvernig hann læknar mig á sál og
anda. Annars hefur þessi þáttur
trúarinnar þ.e.a.s. innri lækning
heillað mig mjög síðustu árin. Mér
finnst stórkostlegt aö sjá hvernig
Guðs andi vinnur í fólki. Mér
finnst líka gott að vita að ég þarf
ekki alltaf aö vera að gera eitt-
hvað fyrir Guð, hann hefur áhuga
á mér! Guð vill eiga tíma með mér
sem Málfríöi, en ekki bara sem
starfsmanni i Guös ríki. Það sem
stendur upp úr í mínu trúarlífi er
kærleikur, miskunn og náð Guðs
sem er mér svo dýrmætt og svo
óendanlega djúpt aö maöur er
alltaf aö læra eitthvað nýtt. Þaö
er þaö sem gerir lífiö með Guöi
svo spennandi.
R: Ég get alveg tekið undir allt
þetta sem Málfríöur segir og þarf
kannski ekki að segja meira. En mér
hefur alltaf fundist hún öfundsverö
fyrir hve einlægt og kæleiksríkt
samband hún á viö Guö. Fyrir mér
er það trúarreynsla útaf fyrir sig.
Mesta trúarreynslan mín er þegar
ég kynnist Guöi á persónlegan hátt.
Það var lífsbreytandi fýrir mig.
Annars held ég aö reynsla min af
fyllingu Heilags anda sé það sem
mótaöi mína trú að mestu leiti.
Það að fá að reyna náöargjafir
Guös í lífi minu hefur veriö mér af-
skaplega trúarstyrkjandi. Það er
eins og einhver eldur hafi kviknaði
innra með mér og þessi eldur
brennur ennþá. Þaö er þessi kraftur
sem knýr mína trú. Núna síöustu
árin er finnst mér tvennt standa
uppúr. Þaö er sá læknandi kraftur
sem býr í friði Guös. Og sá kraftur
sem býr í fyrirgefningu og náð
hans. Sú staðreynd að það er ekk-
ert sem ég get gert til þess að Guð
elski mig meira eöa minna, það
finnst alveg stókostlegt. Ég hef oft
reynt að reyna að skilja kærleika og
náð Guðs en mér er þaö eiginlega
ómögulegt. Þetta er eins og Mál-
fríður segir, það er alltaf eitthvað
nýtt sem kemur i Ijós. Að trúa á
persónulegan Guð er ótrúlega
spennandi ferðalag.
Ragnar og Málfríöur fluttu í bæinn
fyrir rúmum 2 árum og búa á
Álftanesi. Nokkrum mánuðum síðar
fór Málfríöur aö vinna á leikskóla
KFUM og KFUK, en Ragnarvann í
eitt ár til viðbótar á Keflavíkurflug-
velli. Hann hófstörf hjá félögunum
í janúar í fyrra. Segja má að þar
hefjist nýr kafli í lífi þeirra.
Hvernig stóO á þessum breytingum?
R: Ég hélt persónulega að þegar
við hættum með sunnudagaskól-
ann f Keflavík, hefði barna-
starfskaflanum í lifi okkar lokið,
en svo var greinilega ekki. Þegar
viö byrjuðum fyrst í barnastarfi
fundum við að þetta var nokkuð
sem Guð hafði lagt okkur á hjarta.
Nú starfa ég hjá Landssambandi
KFUM og KFUK og sé þar um
æskulýðsstarfið. Þar fer geysilega
fjölbreytt og margþætt starf fram;
þar koma um 130 leiötogar sem
eru sjálfboöaliðar á öllum aldri að
starfinu, en leiðtogar eru yfirleitt
18 ára og eldri, en aðstoðarleið-
togar eru yngri. Fræðsluefni er
gefið út tvisvar á vetri og koma
margir að því að skrifa þaö, en öll
samræming á sér stað á skrifstof-
unni hjá okkur. Á hverju ári eru
um 2600 börn skráð í vikulegt
æskulýðstarf hjá KFUM og KFUK.
Fyrir utan þetta eru sumarbúðir
og annað starf sem er í boöi. Sið-
an er miðborgarstarfið innan
ramma æskulýðsstarfsins, en það
er nokkuð ööruvísi en hið hefð-
bundna deildarskipta æskulýðs-
starf.
M: Ég hélt líka að hlé yrði á
starfi mínu með börnum þegar við
flyttum í bæinn, en Guð vill aug-
Ijóslega nota okkur eitthvaö áfram
að þessu leyti. Þaö var og er bæði
spennandi og aö vissu leyti ógn-
vekjandi að fara þaðan sem við
þekktum alla innviði I Keflavík og á
nýjan stað, þar sem Guð er að leiða
okkur nýjar leiðir, sem hann sýnir
okkur með hverju spori. Guö kemur
manni sífellt á óvart, en þetta er
hluti af því að leggja sig í Guðs
hendur og biðja um hans hand-
leiðslu, þá gerist eitthvað spenn-
andi. Viö vorum t.d. búin aö biðja
Guö aö vera meö okkur i að finna
húsnæði og Raggi segir að innan
sviga hafi ég beöið Guö að gefa
okkur stað þar sem viö hefðum út-
sýni, ef hægt væri, og stórkostlegra
útsýni en þetta er vart hægt að
hugsa sér! í þessu sem öðru getum
viö tekið undir oröin: Fel Drottni
vegu þína og treyst honum, hann
mun vel fyrir sjá (Sálm.37,5). Viö
vitum ekki alltaf hvað er framund-
an, en ef við leggjum allt I Guðs
hendur, þá fer allt vel.
Víð höfum aöeins náö að stikla á
mjög stóru í viðburðaríku Iffi og
starfi Ragnars og Málfríöar. Saga
þeirra segir okkur aö ef Guö fær
að vera Drottinn í lífi okkar og
leiða okkur, þá verður lifiö sann-
arlega spennandi og viðburðaríkt.
Leyfum sögu þeirra að vera áskor-
un til okkar að þora að stiga þau
skref sem Guð leiöir okkur til í lífi
og starfi. Þá munu fyrirheit Guðs
fyrir líf okkar rætast og hann mun
veita okkur vonarríka framtíð
(Jer.29,11).
Viömælandi Ragnars Snæs
og Málfríðar er flugfreyja