Bjarmi - 01.06.2004, Side 3
Efnisyfirlit
4 Kirkjan vex
örtíKína
Ragnar Gunnarsson hefur
kynnt sér vöxt kirkjunnar
í Kína þar sem stefnan í
trúmálum viröist vera
„frelsi undir eftirliti." Allt
bendir til þess aö kirkjan
sé í mjög örum vexti í
fjölmennasta ríki jarðar.
13 Fagnaöarerindi
Da Vinci lykilsins
Ein söluhelsta bók hér á
landi undanfarna mánuöi
er Da Vinci lykillinn, en
hér skoðar Karl Sigur-
björnsson biskup bókina
annars vegar sem
spennusögu og hins vegar
söuglegan áreiðaleika
hennar þegar kemur að
staðhæfingum um kenn-
ingar kirkjunnar.
16 Þú skaltekki
drýgja hór
Ólafur Jóhannsson sókn-
arprestur heldur áfram
umfjöllun sinni um boö-
orðin og er nú kominn að
því sjötta.
ISBarnið mitt...
Katrín Magnúsdóttir hug-
leiðir fyrirgefninguna í
eigin lífi og gildi hennar
fyrir lif okkar allra.
23Bænaganga
Hafsteinn G. Einarsson
segir fréttir af merkilegri
bænagöngu kringum
Reykjavík á sumardaginn
fyrsta.
25 „Mér var kastað
út úr þorpunum“
Ragnar Schram settist
með Helga Hróbjartssyni
upp í flugvélina hans í
Eþíópíu og spuröi hann
spjörunum úr varðandi líf
hans og starf sem kristni-
boöa meðan þeir flugu
um loftin blá.
Auk þess: Frásaga, á döf-
inni, bæn frá Kína, brand-
arar og fréttir.
Lifandi kirkja kemur saman
Hvítasunnan er að
baki. Oft er hún, og
meö réttu, kölluð
fæðingarhátíð kirkj-
unnar. Heilagur andi
var sendur og tíminn
fyrir úthellingu and-
ans „yfir alla menn" var kominn. Kallið
til eftirfylgdar við Jesú Krist hefur
hljómað alla tíð frá þeim degi. Post-
ulasagan birtir mynd af straumhvörf-
um, byltingu sem varö, andlegri
sprengingu eða vakningu sem hófst í
Jerúsalem á hvítasunnudag fyrir tæp-
um 2000 árum. Þau voru mörg sem
þáðu gjöf heilags anda, kusu að lifa í
krafti andans og bera Jesú vitni í lífi
og dauða.
Ávöxturinn af úthellingu andans birt-
ist á margan hátt. Hin kristnu tóku að
koma saman og lofa Guð. Þau ræktu
trúlega uppfræðslu postulanna og sam-
félagið, brotningu brauðsins og bænirn-
ar. Þannig fór kirkjan af stað, þannig
heldur líf hennar áfram.
Kirkjan er samfélag þeirra sem trúa á
lifandi frelsara. Um þaö snýst kenningin,
lofgjörðin, samfélagiö, broting brauðsins
og bænin. Sá rammi sem fólk hefur sett
sér innan hinna ýmsu kirkjudeilda og
safnaða er ekki allur eins. Birtingarform
tilbeiðslu, lofgjörðar og samfélags er frá-
brugðið frá einni kirkju til annarrar og
heimsálfa á milli. En einn er Drottinn.
Heilagur andi er einn. Þess vegna eru þau
sem trúa á hann einn líkami. Heilagur
andi tengir þau saman. Hann skapar ein-
ingu og kærleika þvert á mörk menning-
arheima, hvort sem það er innan sama
samfélags eöa á milli landa og heimsálfa.
Kirkjunni er líkt við skip í lífsins ólgu-
sjó. Stundum hvessir, stundum er sjórinn
lygn. Freisting er til að láta berast undan
vindi þegar á móti blæs en kallið er oft-
ar en ekki að snúa stefni upp í vindinn.
Oft er einfaldara að láta aöra segja sér
hvert skal haldið en að fylgja eigin
sannfæringu, hugsjón og stefnu. Önnur
freisting er að setja traust sinn á ytra
skipulag, eigin mátt og færni, fjármagn
og jafnvel yfirvöld. Köllun kirkjunnar er
engu að síður sú að setja traust sitt á
engan annan en Drottin kirkjunnar, Jesú
Krist. Skipulag, hæfileikar og fjármagn er
gjöf Guðs, en krafturinn þarf að vera
kraftur heilags anda.
í nýlegri könnun kom í Ijós að 43%
þjóðarinnar sækir aldrei kirkju, kristni-
boðsakur sem telur um 120 þúsund
manns. Leiða má rök að þvi að þessi tala
segi ekki allt. Margt fólk iðkar sína trú,
einkatrú, út af fyrir sig og kærir sig ekki
um að sækja kirkju. Velferðarsamfélagið
hefur gert okkur óháð öðrum. Sú hugsun
smitar gjarnan yfir á trúna.
Biblian leggur aftur á móti mikla
áherslu á gildi samfélagsins. Hin fyrstu
kristnu voru snert af heilögum anda. Þau
komu saman, áttu samfélag, báðu og
lofuðu Guö í sameiningu. Saman horfðu
þau fram á veginn. Köllun kirkjunnar
felst í þvi að ná til allra og kallið snýst
um að gera fólk að lærisveinum sem lifir
i trú fyrir frelsara sinn. Við megum aldrei
sætta okkur við auða kirkjubekki og
hálffulla samkomusali.
Bjarmi beinir sjónum sínum nú aö
Kína. Kirkjan þar er í örum vexti þrátt
fyrir mótlæti og erfiðleika. Þar kemur
fólk saman, ýmist opinberlega eða í
leynum. Saman styrkir þau hvert annað.
Margir telja kirkjuna í Kína vera eins og
undiröldu sem hægt og sígandi komi
upp á yfirborðið og móti samfélagið allt.
í Afriku hefur kirkjan vaxið ört: Frá
tíu milljónum árið 1900 til 360 milljóna
árið 2000. Það er næstum helmingur
íbúa álfunnar. Kirkjan kemursaman. Hún
lifir í krafti andans. Hún ber frelsaranum
vitni alla daga vikunnar.
Við trúum á heilagan anda og kirkj-
una, því andinn kallar hana saman og
gerir hana að heilögu samfélagi þeirra
sem trúa á fýrirgefningu syndanna og
eilíft líf í Jesú Kristi.
Ragnar Gunnarsson
Bjarmi 98. árg. 2. tbl. júní 2004
Útgefandi: Samband íslenskra kristniboðsfélaga. Ritstjóri: Ragnar Gunnarsson. Ritnefnd: Kjartan Jónsson og Haraldur Jóhannsson. Ritnefndarfulltrúi: Ragnar Schram.
Prófarkalestur: Þorgils Hlynur Þorbergsson. Afgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi 28,104 Reykjavík, sími 588 8899, fax 588 8840, vefslóðir www.bjarmi.is og sik.is. Árgjald: 3.200 kr.
innanlands, 3.700 kr. til útlanda. Gjalddagi 1. april. Verð í lausasölu 800 kr. Ljósmyndir: Asialink, Aeropagos, NOREA Radio, Gabriel Edland og Inga-Lill Rajala, Myndasafn Vatnaskógar,
Ragnar Schram o. fl. Forsíðumynd: NOREA, Gabriel Edland. Umbrot: Reynir Fjalar Reynisson. Prentun: Prentmet.
3