Bjarmi - 01.06.2004, Side 7
um í landinu og yfirvöld hafa tjáð
stjórnendum skólanna áhyggjur
sínar. Reynt er að takmarka fjölda
þeirra sem sækja sum námskeið.
Þessar stofnanir eru því undir eft-
irliti yfirvalda eins og guðfræði-
skólar opinberu kirkjunnar. Engu
að síöur kemur fjöldi kennara við
guöfræðiskóla á Vesturlöndum og
kennir um lengri og styttri tíma i
þessum skólum. Margir náms-
menn og kennarar hafa áhuga á
kristinni hugsun, heimspeki og
guöfræði og tengsl þessa við sið-
fræði Vesturlanda, bókmenntir,
menntun, vísindi og stjórnmál.
Margt menntafólk hefur breytt af-
stöðu sinni til kristinnar trúar frá
gagnrýni eða höfnun til samþykkis
eða jákvæðni. Innan þessa hóps
svonefndra menningar- eöa
menntakristinna Kinverja þróast
ný kínversk-kristin guðfræði, sem
trúlega stendur nær daglegu lífi
fólks en margt það sem kennt er á
prestaskólum opinberu kirkjunnar.
Innan þessa hóps er að finna fólk
sem komist hefur i áhrifastöður
innan stjórnkerfisins.
Kristniboðskirkjan í Kína
Ýmsir hópar heimilissafnaðanna
eru sannfærðir um að kristnir Kin-
verjar eigi að vinna að útbreiðslu
fagnaðarerindisins um Jesú Krist á
meðal annarra þjóða. Þrátt fyrir að
ailt I hinu ytra viröist koma I veg
fyrir það er ekki gefist upp. Ein
þeirra sem vinnur aö kristniboðs-
starfi Kínverja kallar sig Liu. Hún
var á meðal þeirra fyrstu sem fór
úr landi til að boða trúna á er-
lendri grund. Hún segir að nú sé
mun auðveldara að sinna þessu en
var fyrir 20 árum. Hún þjálfaði um
200 manns í fyrra, kristniboðsnem-
endur á földum skólum í suður-
hluta landins. Nemendurnir geta
ekki farið um frjálsir ferða sinna
vegna hættu á eftirliti yfirvalda.
Annar Kínverji sem kallar sig
Paul hefur farið til Egyptalands og
Jórdaniu. Hans hugsjón er að
kristnir Kínverjar setji upp verk-
smiðjur I Arabalöndunum. Prédik-
ararnir geti lifað á því starfi en
jafnframt vitnað um trú sina,
maður við mann, þvi yfirvöld muni
trúlega berjast af hörku gegn op-
inberu trúboði. Paul tilheyrir
hreyfingu sem kallar sig Aftur til
Jerúsalem, þar sem hugsjónin er
aö boða trúna sérhverri þjóð og
þjóöarbroti sem býr milli Kína og
Jerúsalem. Aö baki standa ein-
staklingar úr heimilissöfnuöum og
Kínverjar búsettir erlendis.
Barátta fyrir lýðræði
í Kina eins og viöa annars staðar
eru ekki allir sammála um stefn-
una bæði í boðunarstarfinu, eða
hvaða afstöðu eigi að taka til yfir-
valda i Kína og aö hve miklu leyti
kristiö fólk eigi að taka þátt í bar-
áttunni fyrir lýðræðislegum um-
bótum í landinu. Ein stefnan er að
auka þrýsting á yfirvöld og vinna
að þjóðfélagsumbótum þvi ekki sé
nóg að safna sálum fyrir himininn.
Talsmaöur þessa hóps kallar sig
Lu. Hann er þrítugur aö aldri og
menntakristinn. Unnið er að und-
irbúningi útgáfu neðanjarðartíma-
rits sem hvetur kristið fólk einnig
til ábyrgðar heima fyrir. Hann
segist, í viðtali við Schafer, vera
sér meðvitaður um að yfirvöld
hleri símann hans og skoöi tölvu-
póstinn en það veki ekki ótta hjá
sér. „Ég er öruggari um mig núna,"
segir Lu, „því áður var ég hræddur
um að verða fyrir ofsóknum. Nú er
ég kristinn og veit að trú min mun
hjálpa mér til að sigrast á pynt-
ingum sem geta beðið mín í fang-
elsi." Sehafer bendir á aö djörfung
sem þessi veki ótta leiðtoga
Kommúnistaflokksins. Þeir líti svo
á að kirkjur mótmælenda og róm-
versk-kaþólskra beri ábyrgð á falli
L
7