Bjarmi - 01.06.2004, Síða 9
Kirkjan á næstu árum
Margir sjá merki þess aö staða
kirkjunar muni eflast á næstu
árum. Kristindómurinn sé salt og
Ijós þjóðfélagsins I auknum mæli
og að á næstu áratugum muni
nýjar leiðir opnast þar sem staöa
kristni og kirkju muni eflast. Yfir-
völd eru enn að glíma við þann
vanda, hvernig megi innleiða
vestræn gildi eins og lýðræði og
mannréttindi án þess að missa
stjórnina.
í október I fyrra gaf fyrrum
fréttaritari Time í Peking, David
Aikman, út bókina Jesus in
Beijing: How Christianity isTrans-
forming and Changing the Global
Balance of Power. (Jesús í Peking:
Hvernig kristindómurinn er að
breyta valdajafnvægi heimsins).
Þar heldur hann því fram að tala
kristins fólks I Kína sé nærri 80
milljónum og að á næstu árum
muni eiga sér stað miklar breyt-
ingar i alþjóöastjórnmálum þar
sem trúarbrögðin skipti mestu. Þá
muni áhrifa kristindómsins í Kína
gæta sterklega, þar sem margt
bendi til þess að þriðjungur Kin-
verja gerist kristinn á næstu 30
árum. Þar er þá um að ræða
hundruð milljóna. I Kína verði
fjölmennasta kirkja heims og hin
kristnu I landinu muni án efa velj-
ast í leiðtogastöður og stýra
stærsta efnahagskerfi heimsins.
Hann tekurdæmi af viðskiptajöfr-
um og stórtækum verktökum sem
séu kristnir. Hann telur allt að því
helming þeirra sem eru I þjónustu
Kínverska rikisins á erlendri grund
vera kristna. Það sem er að gerast
í Kína sé svipaö því sem gerðist í
Rómaveldi á fyrstu tugum kristn-
innar. Áhrifin geti orðið gífurleg.
Aikman segir það mat margra
Kínverja og kínverskra mennta-
stofnana að kristindómurinn sé
lykillinn að velgengi Vesturlanda.
Aikman dregur ekki úr þeirri þján-
ingu sem fólk úr heimasöfnuðun-
um hefur mátt þola, og dregur
fram þá miklu djörfung, trú og
sigur sem finna má á meðal þeir-
ra. Fjöldi fólks hefur hætt lífi sínu
og þurft að greiöa fyrir trú sína
meö dauðanum. Hann bendir á að
neðanjarðarkirkjan hafi náð aö
ávinna lykilpersónur innan Komm-
únistaflokksins.
Gagnrýni á Aikman
Skrif Aikmans hafa mætt gagnrýni
fólks sem þekkir til I Kína. Gagn-
rýnendur telja hann leggja of mik-
ið upp úr tengslum lýöræðisþró-
unar og stöðu kristindómsins og
aö það sé ekki einhlítt að þetta
tvennt vaxi saman. Einnig sé
áherslan á velgengi einhæf, margt
fólk i Kína sé upptekiö af þeim
þætti og vilji heyra minna um að
deyja sjálfum sér og lifa í hlýðni
við Krist. Því sé ekki víst að krist-
indómurinn veröi svo öflugur. Ekki
sé geröur mikill greinarmunur á
mismunandi guöfræðistefnum
sem ráði ríkjum og hvert þær leiði.
Einnig er afstaðan til „Þriggja
sjálfa kirkjunnar" talin of neikvæð,
þar sé einnig margt gott að ger-
ast, til séu öflugir lifandi söfnuðir,
þar sem fólk mætir með Biblíurnar
sínar I messu, biður af ákafa,
syngur heils hugar og ekki sé ann-
aö að sjá en Jesús sé tilbeðinn og
tignaður af öllu hjarta.
Bók Aikmans virðist einnig
eiga þátt I auknum ofsóknum á
hendur kristnu fólki I Kína á liðn-
um mánuðum og vikum. Bókin
hefur sýnt yfirvöldum að trúlega
sé staða kristninnar betri en þau
héldu. Hún tengi stöðu kristninnar
við framþróun lýðræðis I landinu
og þar sjá þau hættu á ferð. Aik-
9