Bjarmi - 01.06.2004, Qupperneq 13
Karl Sigurbjörnsson
Fagnaðarerindi
Da Vinci lykilsins
Da Vinci lykillinn heitir bók sem
mörgum áskotnaðist um jólin og
hlaut lof gagnrýnenda. Bókin er
forvitnileg áhugafólki um kristna
trú, guðspjöllin og sögu kirkj-
unnar, vegna þess sem þar er
haldið fram um tilurð þessa.
Höfundur hennar, Dan Brown,
heldur því fram að sagan sé
byggð á staðreyndum. Hún stillir
okkur þar með upp frammi fyrir
grundvallarspurningum um rætur
vestrænnar menningar.
Sagan er hin furöulegasta.
Höfundur heldur því fram að nán-
ast allt þaö sem kirkjan hefur
haldið fram um Jesú Krist séu lygi
og blekkingar. Hópur biskupa á
kirkjuþinginu í Níkeu ÍTyrklandi
árið 325 hafi, að sögn Brown, vilj-
aö styrkja valdagrundvöll sinn, og
hafi búiö til guðdómlegan Krist og
óskeikula ritningu, hvort tveggja
nýjungar sem ekki hafi áður
þekkst í kristninni. Guðdómleiki
Jesú og kennivald Biblíunnar sé
uppspuni sem eigi rætur að rekja
til hatrammrar valdabaráttu á 4.
öld. Hið sanna fagnaðarerindi hafi
verið afskræmt og umbylt af
páfavaldinu.
Da Vinci lykillinn heldur því
fram að Jesús hafi verið kvæntur
Maríu Magdalenu, hafi átt börn
og þau verið flutt til Suður-Frakk-
lands. Kirkjan hafi þaggað þessa
staöreynd niður til þess að geta
haldið því fram að Jesús hafi veriö
guödómlegur. Aukinheldur hafi
orðspor Maríu Magdalenu sem
skækju verið uppdiktað af
Vatikaninu til þess að grafa undan
áhrifum hennar og kvenna al-
mennt í kirkjunni. Hin raunveru-
lega saga hafi verið varðveitt af
leynifélagi að nafni „The Priory of
Zion" sem ýmsir frægir Evrópu-
menn svo sem listamaðurinn
Leonardo da Vinci hafi tilheyrt.
Bók Dans Brown er spennandi
glæpasaga. Lesandinn dregst inn í
sannfærandi samsæriskenningar
og situr uppi meö spurningar um
sannleiksgildi þess sem kirkja og
kristni stendur fyrir. Hann spyr sig
ef til vill: Er það ef til vill aðeins
lævislegt samsæri, til aö þagga
niður sannleikann og viðhalda
völdum harðsvíraðra og spilltra
kirkjufursta? En prestar og guö-
fræðingar og aðrir fræöimenn
hrista hausa sína og spyrja hvern-
ig í ósköpunum fólk getur lagt
trúnað á svona þvælu.
Bókin gerist aðallega í Suður-
Frakklandi. Söguhetjurnar hafa
komist á snoðir um hinn ótrúlega
leyndardóm og ganga í gegnum
miklar mannraunir til að komast
undan lögreglunni og morðóðum
munki. Höfundurinn gerir iðulega
hlé á spennuþrunginni atburða-
rásinni til aö draga fram „sögu-
legar staðreyndir" - sem studdar
eru tilvísunum i bókmenntir og
fræðirit - um hjúskap og barneign
Jesú. Það er þessi „staðreynda"-
hjúpur sem heillað hefur svo
marga lesendur.
í grein í New York Times sem
nefnist „Síðasta orðið: Da Vinci
svindlið", lýsir bókmenntafræðing-
urinn Laura Miller því, hvernig
Dan Brown hefur fengið mest að
efni bókarinnar úr sögulegum
skáldsögum og „sögulegum"
skáldritum sem fræðimenn hafa
fyrir löngu afgreitt sem fals. Það
eru bækur sem segja frá áhrifa-
miklu leynifélagi, The Priory of
Zion, sem stofnað var í Jerúsalem
1099 til að vaka yfir sönnunum
þess aö Jesús hafi verið kvæntur