Bjarmi - 01.06.2004, Blaðsíða 20
Myndasafn Vatnaskógar: Lárus Páll Birgisson.
haföi búist viö, í staöinn heyrði ég
hann segja: „Þaö er ekkert sem
getur aðskiliö þig frá kærleika
mínum. Ég elska þig eins og þú
ert." Ég fékk síðan aö fyrirgefa
sjálfri mér. Allt sem ég hélt aö ég
þyrfti aö lifa með og allt sem ég
hélt að ekki væri hægt aö fá fyrir-
gefningu fyrir, hvarf eins og dögg
fyrir sólu. Ég fann að hann náöaöi
mig niður í innstu hjartarætur. Frá
þeirri stundu hvarf þaö gamla og
ég haföi eignast nýja byrjun.
Náö Guðs brýtur okið af þér.
Guö hefur trú á þér. Þegar hann
horfir á þig sér hann ekki mistökin
sem þú hefur gert heldur mögu-
leikana sem þú átt. Þú þarft ekki
að sætta þig við fortíðina eöa lifa
meö hana ein eöa einn þíns liðs.
Máttur fyrirgefningarinnar
Ég valdi einnig aö fyrirgefa manni
sem haföi hafnað mér og sært
mig mjög djúpt. Guö sýndi mér aö
ég yröi aö fyrirgefa honum svo ég
gæti fengið græöslu og lausn inn í
þessar kringumstæöur. í bæn kom
ég þá meö manninn til Jesú og ég
fyrirgaf honum. Ég fékk þá að sjá í
sýn aftur þessar kringumstæður
þar sem mér hafði verið hafnaö
og ég sá Jesú koma inn í þær.
Hann tók í hönd mína og leiddi
mig út úr þeim þannig aö mér
fannst ég bara vera áhorfandi.
Hann sagði ekki neitt en ég var
umvafin kærleika hans. Þegar
hann var búinn aö leiða mig af-
síöis út úr þessum kringumstæö-
um, þá gekk hann sjálfur inn í
þær. Það sem gerðist var aö hann
fórnaöi sér í minn staö. Hann tók
á sig mína höfnun og minn sárs-
auka og ég varð frjáls. Þegar ég
hugsa til baka um þessar kring-
umstæöur, þá sé ég þaö sem Jesús
geröi fyrir mig. Hann gekk á milli
min og þessara kringumstæðna og
leysti mig. Hann tók burt sársauk-
ann í hjarta mínu. Þegar Guð
læknar okkar innri mann gerist
það oft á svona myndrænan hátt.
Viö sjáum með okkar innri augum
hvernig Jesús kemur inn í kring-
umstæðurnar. Hann er sá sami í
dag, gær og um alla eilífö. Þess
vegna getur hann farið með okkur
til baka inn í þær aöstæöur sem
hafa bundið okkur.
Fyrirgefningin færir þér lækn-
ingu sem færir þér fullkomið
frelsi. Þú ert ekki lengur fórnar-
lamb. Þú verður sigurvegari. Þar
sem slæm reynsla hefur mótaö
þig, þar fær kærleikur Guðs aö
móta þig aö nýju. Kærleikur hans
gerir alla hluti nýja.
Þegar þú fyrirgefur þá byrjar
kærleikur Guðs aö móta þig aö
nýju og fortíðin stýrir þér ekki
lengur. Kærleikur hans græðir
brostin hjörtu, þaö sem hefur ver-
ið sundrað eöa brotiö i sálu þinni.
Slæmar minningar missa sárs-
aukabroddinn.
Þegar þú fyrirgefur þá eignast
þú nýtt líf. Þú eignast nýja sann-
færingu sem ekki er hægt að taka
frá þér. Þú verður sigurvegari. Fyr-
irgefningin læknar persónuleik-
ann! Hún færir þig út úr þeim aö-
stæðum sem hafa bundið þig og
hún færir þér innri friö og jafn-
vægi. Persónuleiki þinn blómstrar.
Kærleikur Guðs yfirgnæfir allt
Guð hefur sýnt og sannaö það
fyrir mér aö það sem gefur mér
styrk til að fyrirgefa eöa að
takast á við erfiðar kringumstæö-
ur er kærleikur hans. Hann elskar
mig og þig aö fyrra bragði, áður
en viö höfum gert nokkuð til aö
veröskulda það. Hann fyllir hjarta
okkar með þessum skilyrðislausa
kærleika sem ber okkur í gegnum
alla erfiðleika. Hann gefur okkur
einnig von fyrir daginn í dag og
komandi framtíð. Hann segir: „Þú
þarft ekki aö óttast. Hættan er
liðinn hjá. Ég er hjá þér og vern-
da þig. Ég mun aldrei yfirgefa
þig."
Ég verð seint eöa aldrei dýr-
lingur. Ég get ekki frelsaö mig
sjálf. Ég verð algjörlega aö treysta
Guði fyrir lífi mínu og ég þarf aö
gefa honum stjórnina. Ég þarf aö
sleppa tökunum. Ég þarf ekki aö
bíta á jaxlinn og brosa í gegnum
20