Bjarmi - 01.06.2004, Síða 21
tárin. Ég þarf ekki aö reyna aö
vera sterk og þrauka daginn.
Hann hefur ekki heldur ætlað
okkur aö vera píslarvottar. Viö
þurfum ekki aö láta illt yfir okkur
ganga. Við þurfum ekki að sætta
okkur viö erfiöar kringumstæöur.
Jesú vann fullkominn sigur inn í
allar kringumstæður þegar hann
gaf líf sitt fyrir okkur. Hann sagöi
á krossinum: „Þaö er fullkomnað."
Hann bar sjálfan sig sem fórn í
eitt skipti fyrir öll og aflaði okkur
eilífrar lausnar og lækningar.
Þaö eina sem Guð fer fram á
viö okkur er aö viö tökum á móti
þessum skilyrðislausa kærleika.
Hjarta hans svellur af skilyröis-
lausum kærleika til þín.
Hann segir að eina syndin sem
til er sé sú að við tökum ekki viö
eöa trúum ekki á Jesú. í Jóhann-
esarguðspjalli 3:16-17 stendur:
Svo elskadi Guð heiminn, að hann
gafson sinn eingetinn, til þess að
hversem á hann trúirglatist ekki,
heldur hafi eilift lif. Guð sendi ekki
soninn i heiminn til að dœma
heiminn, heldur að heimurinn
skyldi frelsast fyrir hann.
Og i 1. Jóhannesarbréfi 4:7-
10,14-19 stendur: Þérelskaðir,
elskum hverannan, þvi að kœrleik-
urinn er frá Guði kominn, og hver
sem elskar er afGuði fœddur og
þekkir Guð. Sá sem ekki elskar
þekkir ekki Guð, þvi að Guð er kœr-
leikur. i þvi birtist kœrleikur Guðs
meöal vor, að Guð hefursent
einkason sinn i heiminn til þess að
vérskyldum lifa fyrirhann. Þetta er
kœrleikurinn: Ekki aö vér elskuðum
Guð, heldur aö hann elskaði oss og
sendi son sinn til að vera friðþœg-
ing fyrirsyndirvorar. Vérhöfum
séð og vitnum, að faðirinn hefur
sentsoninn til að vera frelsari
heimsins. Hversem játar, aðJesús
sé Guös sonur, I honum er Guð
stöðugurog hann ÍGuði. Vérþekkj-
um kœrleikann, sem Guð hefur á
oss, og trúum á hann. Guð er kœr-
leikur, og sá sem erstöðugur i kœr-
leikanum er stöðugur i Guði og
Guð er stöðugur i honum. Með þvi
er kœrleikurinn orðinn fullkominn
hjá oss, að vér höfum djörfung á
degi dómsins, því að vérerum I
þessum heimi eins og hann er. Ótti
er ekki I elskunni. Fullkomin elska
rekur út óttann. Þvi að óttinn felur
isér hegningu, en sá sem óttast er
ekki fullkominn I elskunni. Vér elsk-
um, því að hann elskaði oss að
fyrra bragði.
Að taka á móti kærleikanum
Þaö er svo ríkt í okkur að dæma.
Við höldum einnig aö Guö sé á
himnum meö refsifingurinn á lofti
tilbúinn til aö varpa á okkur eld-
ingu ef viö gerum eitthvað af okk-
ur. Viö höldum líka aö viö gerum
okkur velþóknanleg fyrir honum
með því aö fara inn í dýrlings-
eða píslarvættishlutverk.
Þaö er alls ekki auðvelt að trúa
og taka á móti þessum skilyrðis-
lausa kærleika. Þaö er svo ríkt í
okkur að viö þurfum aö verð-
skulda kærleika eöa viðurkenn-
ingu.
Það er skrýtiö aö þaö sem er í
raun svona yndislegt þarf aö vera
okkur svo erfitt aö taka viö.
Viö erum búin að flækja trúna
með alls konar kenningum, siðum
og boðum. En sönn trú er ekki
kenning, siðir eöa bönn. Sönn trú
er að trúa á algóðan Guö og Jesú
frelsara okkar. Að taka á móti þvi
sem hann hefur að gefa okkur.
Guð elskar þig eins og þú ert.
Sönn trú er það þegar þú hefur
tekið á móti kærleika Guðs og
hann hefur gefið þér nýtt lífsgildi.
Þá leggur þú sjálfkrafa af það sem
hefur skaðað þig. Það er kærleikur
hans sem gefur þér styrk til þess.
Ekki refsifingur Guðs sem segir að
þú megir ekki. Guö leggur ekki
nýjar byrðar á þig. Það erum við
sem höfum gert þetta svona erfitt,
þvi þaö er svo erfitt aö trúa á skil-
yröislausan kærleika Guðs. Hann
elskar okkur eins og við erum og
hann vill að viö lifum frjáls. Það
erum við sem höfum búiö til þessi
dýrlings- og pislarvættishlutverk.
En sannleikurinn er sá aö viö get-
um engu bætt viö þá friðþægingu
sem Jesús vann fyrir okkur á
krossinum í eitt skipti fyrir öll. Viö
þurfum bara að taka við henni. Þú
getur ekki unnið þér hana inn. Þú
verður einfaldlega að beygja hné
þín og taka við henni.
Skoðaðu hjarta þitt. Kannski
þarft þú að biöja Guö um aö fyrir-
gefa þér afstööu þína til hans. Þér
finnst kannski að Guö hafi ekki
gripið inn í kringumstæður þínar
þegar þú þurftir þess. En sannleik-
urinn er sá að hann bar þig í örm-
um sér þegar neyðina bar að.
Hann gaf Jesú sem lausnara inn í
allar þínar kringumstæður.
í Jóh. 10:10 segir Jesús: Þjófur-
inn (djöfullinn) kemur ekki nema
til að stela, slátra og eyða. Ég er
kominn til þess að þér hafið líf, líf
í fullri gnægð.
Og i Jer. 33:6 stendur: Sjá ég
legg við hana umbúðir og
grœðslulyfog lœkna þá og opna
þeim gnœgð stööugrar hamingju.
Hann lyftir af þér sorgarklœðun-
um. Hann klœðirþig i skartklœði i
stað hugarvils og gefur þér fagn-
aðarolíu I stað hryggðar.
Svaraðu kalli Drottins. Hann
segir í Matt. 11:28: Komið til min,
allirþérsem erfiði hafið og þungar
byrðar, og ég mun veita yður hvild.
Þér býöst að taka viö kærleika
Guös sem elskar þig aö fyrra
bragði. Hann gefur þér sanna, lif-
andi trú sem mun loga í hjarta
þínu.
Endurnýjaðu nú fermingarheit
þitt:
Himneski Faðir, ég þakka þér
fyrir að þú gafst Jesú sem frelsara
heimsins. Ég trúi því að þú reistir
hann frá dauöum. Ég geri hann nú
aö leiðtoga og Drottni í mínu lífi.
Fyrirgef mér þá synd aö ég hef ef-
ast og ekki tekið á móti og lifað í
samræmi við friðþægingarverkið
sem hann vann fyrir mig á kross-
inum. Ég biö aö ég fái aö taka á
móti fullkomnum kærleika þínum
sem birtist i Kristi Jesú. Aö hann
gaf líf sitt fyrir mig svo ég mætti
vera heil(l) á sál og líkama. Blóöi
hans var úthellt fýrir misgjörðir
mínar. Hjálpaðu mér aö sleppa
tökunum svo kærleikur þinn fái að
leiöa mig og leysa. Ég gefst þér að
nýju og er þá með réttu þitt barn.
í Jesú nafni, Amen.
Drottinn blessi þig.
Katrín Magnúsdóttir er höfundur bók-
arinnar „Brostin hjörtu, hver sér þau"
og lækningardisksins „Fyrirgefðu."
Katrín hefur að baki þriggja ára nám i
sálgæslu og barnasálgæslu og starfar
viö sálgæslu i Fríkirkjunni Veginum.