Heilbrigðismál - 01.06.1988, Qupperneq 20

Heilbrigðismál - 01.06.1988, Qupperneq 20
og eru nær eingöngu notaðar við liðagigt. Eyrnasuða. Eyrnasuða og minnk- uð heyrn af völdum aspiríns eru merki um ofskömmtun og lagast strax og skammtar eru minnkaðir. Þessi aukaverkun kemur helst fyrir hjá þeim sem taka stóra skammta langtímum saman við liðagigt. Blæðing. Blóðflögur hafa mikla þýðingu við að stöðva blæðingu með því að valda æðasamdrætti og loða hver við aðra og við skemmda æðaveggi. Eins og áður er getið truflar aspirín starfsemi blóðflagn- anna og stuðlar þannig að blæð- ingum. Þeir sem hafa aukna blæð- ingartilhneigingu ættu ekki að taka aspirín. Ofnæmi. Um einn af hverjum fimmhundruð hefur ofnæmi fyrir aspiríni og skyldum lyfjum. Þetta lýsir sér oftast með astmakasti. Reyes-heilkenni (Reye's syndr- ome). Miklar umræður hafa verið um allan heim á undanförnum ár- um um þessa sjaldgæfu en hættu- legu aukaverkun. Reye er Ástralíu- maður sem fyrstur lýsti þessu fyr- irbæri árið 1963 og tveimur árum síðar var stungið upp á tengslum við notkun aspiríns. Ekki var talið sannað fyrr en 1985 að Reyes-heil- kehni mætti rekja til notkunar aspiríns. Reyes-heilkenni lýsir sér með heilabólgu, heilabjúg og lifrar- skemmdum og þrátt fyrir bestu hugsanlega meðferð á sjúkrahúsi deyja um 80% sjúklinganna. Þeir sem fá þessa aukaverkun eru eink- um börn og unglingar sem fá aspi- rín þegar þeir eru að jafna sig eftir inflúensu eða hlaupabólu. í flest- um löndum heims er nú varað við notkun aspiríns handa börnum og unglingum með hvers kyns hita- sóttir og víðast hvar hefur svokall- að barna-aspirín (barna-magnýl) verið tekið úr umferð. Þessi auka- verkun er mjög sjaldgæf og virðist tíðni hennar vera mun meiri í Ástralíu og Bandaríkjunum en í Evrópu. Eitrun. í stórum skömmtum veldur aspirín hættulegum eitur- verkunum en börn eru mun við- kvæmari fyrir eiturverkunum lyfs- ins en fullorðnir. Samantekt Það á ekki að nota aspirín til að lækka sótthita hjá börnum og ungl- ingum, ef nota þarf lyf í slíkum til- vikum á frekar að nota paraceta- mól (Panodil eða Parasetamól). Við liðagigt hjá fullorðnum er kominn á markað fjöldi nýrra lyfja sem margir þola betur en aspirín og geta verkað betur. Ekki má þó gleyma þeirri staðreynd að aspirín hefur verið notað í nær 90 ár við verkjum, sótthita og bólgu, og kostir þess og gallar eru því vel þekktir. Að lokum má nefna rann- sóknir á áhrifum aspiríns til að draga úr líkum á kransæðastíflu, en of snemmt er að mæla með notkun lyfsins í þeim tilgangi. Dr. Magnús Jóhannsson læknir er sérfræðingur í lyfjafræði. Hann starfar á Rannsóknastofu i lyfjafræði og er yrófessor við læknadeild Háskóla ís- lands. Hann á sæti í Lyfjanefnd. Þekkingarþraut - spumingar Sjá svör á bls. 24. 11. Hvaða krabbamein er algeng- ast hjá íslenskum konum? □ a. Brjóstakrabbamein. □ b. Lungnakrabbamein. □ c. Magakrabbamein. 12. Hvenær var bólusótt útrýmt í heiminum? □ a. Árið 1967. □ b. Árið 1972. □ c. Árið 1977. 13. Hvaða sjúkdómur stafar af skorti á Bl-vítamíni? □ a. Náttblinda. □ b. Skyrbjúgur. □ c. Taugakröm (beriberi). 14. Hver rekur Landakotsspít- ala? □ a. Ríkissjóður. □ b. Sjálfseignarstofnun. □ c. Sankti Jósefsreglan. 15. Tímaritið „Heilbrigðismál" hét áður „Fréttabréf um heil- brigðismál" og kom fyrst út í desember 1949. Hver var fyrsti ritstjóri þess? □ a. Baldur Johnsen. □ b. Bjarni Bjarnason. □ c. Niels Dungal. 16. Hvaða merkingu hefur rauð- ur þríhyrningur á umbúðum lyfja? □ a. Áhrif á aksturshæfni. □ b. Beiskt bragð. □ c. Takmarkað geymsluþol. 17. Hvaða undirskrift er á við- vörunarmerkingum á tóbaki? □ a. Heilbrigðisráðuneytið. □ b. Landlæknir. □ c. Tóbaksvarnanefnd. 18. Hve mörg börn fæðast hér á landi að meðaltali á dag? □ a. 6-7 börn. □ b. 11-12 börn. □ c. 16-17 börn. 19. Hvað þýðir skammstöfunin SIDA? □ a. Eyðni (á frönsku). □ b. Síðasti söludagur. □ c. Vöggudauði. 20. Þreyta, brjóstsviði, hægða- truflun, hjartsláttarónot, spennu- höfuðverkur og vöðvabólga. Hvaða ástandi er þannig lýst? □ a. Elli. □ b. Járnskorti. □ c. Streitu. 20 HEILBRIGÐISMAL 2/1988

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.