Heilbrigðismál - 01.06.1991, Page 5
HEILBRIGÐISMÁL / Ljósmyndarii
Annar hver fullorðinn íslendingur
gengur reglulega sér til heilsubótar
- samkvæmt könnun Hagvangs
Á síðustu árum hafa gönguferðir
átt auknum vinsældum að fagna
víða erlendis sem einföld leið til
hollrar hreyfingar. Tímaritið Heil-
brigðismál fékk Hagvang hf. til að
kanna ástandið hér á landi með því
að leggja spurningu fyrir þátttak-
endur í svonefndum spurninga-
vagni í maí 1991. Spurt var: Gengur
þú reghdega þér til heilsubótar? Ekki
var skilgreint hvað átt væri við
með heilsubótargöngu heldur var
það eingöngu látið ráðast af eig-
in mati þeirra sem svöruðu. Svör
fengust frá 1067 körlum og kon-
Aldrað fólk gefur yngra fólki lítið
eftir í gönguferðum, samkvæmt
könnun Hagvangs fyrir Heilbrigð-
ismál.
}
um á aldrinum frá 15 ára til 89
ára.
í heild sögðust 25% ganga dag-
lega sér til heilsubótar, 21% nokkr-
um sinnum í viku og 7% vikulega.
Þannig sögðust 53% ganga sér til
heilsubótar vikulega eða oftar.
Hlutfallslega fleiri konur en karlar
fara í heilsubótargöngu. Hins veg-
ar er ótrúlega lítill munur eftir
aldri. Jafnvel þeir sem eru á átt-
ræðis- og níræðisaldri gefa yngra
fólki lítið eftir. Könnunin sýnir að
daglegar gönguferðir eru algengari
meðal íbúa í dreifbýli en þéttbýli
en dreifbýlisbúar gera minna af því
að ganga nokkrum sinnum í viku
og vikulega. Enginn munur er á
daglegum gönguferðum eftir
menntun en þeir sem hafa langa
skólagöngu að baki ganga oftar en
aðrir þegar litið er á göngu nokkr-
um sinnum í viku og vikulega.
Þetta er í fyrsta sinn sem könn-
un er gerð á heilsubótargöngu hér
á landi en fróðlegt verður að end-
urtaka hana að nokkrum árum
liðnum og athuga hvort íslending-
ar tileinka sér betur þessa einföldu
og auðveldu leið til heilsubótar.
Við gætum tekið okkur á í saman-
burði við Bandaríkjamenn en þrír
af hverjum fjórum þar í landi
ganga sér til heilsubótar vikulega
eða oftar (Heilbrigðismál 1/1991),
samanborið við annan hvern ís-
lending eins og áður segir. Þess
ber þó að geta að leitun er á meira
sundfólki en okkur því að þriðji
hver fer í sund vikulega eða oftar
(Heilbrigðismál 4/1988).
Heilsubótarganga
Könnun Hagvangs fyrir Heilbrigðismál í maí 1991.
Spurt var: Gengur þú reglulega þér til heilsubótar?
Svör fengust frá 1067 körlurn og konum, 15-89 ára.
Daglega
Alls....................... 25%
Karlar..................... 22%
Konur...................... 28%
Aldur:
15-29 ára.................. 28%
30-44 ára ................. 23%
45-59 ára.................. 22%
60-74 ára ................. 28%
75-89 ára.................. 24%
Búseta:
Höfuðborgarsvæði .. 22%
Þéttbýli úti á landi . . 27%
Dreifbýli ................. 34%
Menntun:
Stutt skólaganga .... 25%
Löng skólaganga .... 25%
Nokkrum sinnum í viku Vikulega Alls
21% 7% 53%
20% 6% 48%
22% 7% 57%
19% 5% 52%
22% 8% 53%
22% 10% 54%
23% 6% 57%
14% 5% 43%
23% 8% 53%
21% 6% 54%
11% 4% 49%
19% 6% 50%
26% 8% 59%
HEILBRIGÐISMÁL 2/1991 5