Fréttablaðið - 14.01.2010, Side 6
6 14. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822
www.polarnopyret.is
Útsalan
heldur
áfram
50%
afsláttur
Hamfarir á Haítí
HAÍTÍ, AP Enginn veit hve margir
fórust þegar harður jarðskjálfti
reið yfir Haítí í fyrrakvöld.
Jean-Max Bellerive forsætis-
ráðherra sagðist óttast að fjöldi
látinna skipti hundruðum þús-
unda og þingmaðurinn Youri Lat-
ortue talaði um hálfa milljón, en
viðurkenndi jafnframt að það væri
hrein ágiskun.
Staðfest er að hinir látnu skipta
að minnsta kosti þúsundum, en
fullvíst þótti jafnframt að sú tala
myndi hækka verulega.
Í höfuðborginni Port-au-Prince
mátti sjá lík hvarvetna. Víða
var þeim raðað upp og við skóla-
byggingar voru lík ungra barna í
hrúgum.
Jarðskjálfti, sem mældist 7,0
stig, reið yfir stuttu fyrir klukkan
tíu í fyrrakvöld að íslenskum tíma.
Upptök skjálftans voru 15 km suð-
vestur af höfuðborginni á 10 km
dýpi. Eftirskjálftarnir skiptu
tugum og mældust tólf þeirra á
bilinu 5,0 til 5,9.
Skjálftinn er sá stærsti sem orðið
hefur á Haítí í meira en tvær aldir.
Eyðileggingin var gríðarleg. Meðal
annars eyðilagðist forsetahöllin,
dómkirkja borgarinnar, sjúkra-
hús, skólar, aðalfangelsið og fjöldi
íbúðarhúsa.
„Þingið er hrunið. Skattstofan er
hrunin. Skólar hafa hrunið. Sjúkra-
hús hafa hrunið,“ sagði Réné Pré-
val forseti. „Í mörgum skólanna eru
margir látnir.“
Fréttir bárust af því að
fjöldi fanga hafi sloppið þegar
aðalfangelsi höfuðborgarinnar
eyðilagðist. Yfirmaður friðargæslu-
liðs Sameinuðu þjóðanna í Haítí er
látinn og kaþólski erkibiskupinn í
Port-au-Prince sömuleiðis.
„Dómkirkjan, skrifstofur erki-
biskups, allar stóru kirkjurnar og
skólarnir eru rústir einar,“ sagði
Bernardito Auza erkibiskup, sendi-
fulltrúi Páfagarðs á Haítí.
Alþjóða rauði krossinn sagði
allar líkur á því að þriðjungur íbúa
landsins þyrfti á neyðarhjálp að
halda. Hins vegar myndi það ekki
skýrast almennilega fyrr en í dag
eða á morgun.
Haítí er eitt fátækasta ríki ver-
aldar og mátti engan veginn við
því að verða fyrir hörmungum
af þessu tagi ofan á erfitt ástand-
ið. Einræðisstjórnir og byltingar
undanfarinna áratuga hafa farið
illa með þjóðina, svo grunnþjón-
usta er nánast engin. Samgöngur
eru erfiðar og fátt í þjóðfélaginu
almennt sem virkar.
gudsteinn@frettabladid.is
Ringulreið og óvissa
eftir öflugan skjálfta
Jarðskjálftinn á Haítí er sá harðasti þar í meira en 200 ár. Þriðjungur íbúa
landsins talinn þurfa neyðarhjálp. Helstu byggingar höfuðborgarinnar Port-au-
Prince eyðilögðust, þar á meðal skólar, sjúkrahús og aðalfangelsi borgarinnar.
„Hann lét strax vita. Áður en við
vissum af skjálftanum hringdi
hann í konuna sína í Bandaríkj-
unum,“ sagði Alfa Ragnarsdóttir,
móðir Halldórs Elíasar Guðmunds-
sonar, sem var á Haítí þegar stóri
skjálftinn reið yfir.
Halldór er í guðfræðinámi
í Ohio í Bandaríkjunum.
Hann fór þaðan á mánudag í
vikuferð með fjórtán manna
hópi í námsferð að kynna
sér hjálparstarf sem banda-
rísk kirkja í Colorado rekur
meðal fátækra barna og
einstæðra mæðra á
Haítí. Hann lét vita
af sér strax eftir
skjálftann í fyrrakvöld og sagðist
óhultur en að hótelið í Jacmel, um
þrjátíu kílómetra suður af höfuð-
borginni Port-au-Prince, væri stór-
skemmt.
Um miðnætti í fyrrakvöld,
rúmum tveimur tímum
eftir skjálftann, lét Hall-
dór Elías vita af sér á
samskiptavefnum Twitt-
er. Hann sagðist þá sitja
undir tré í garði „þar sem einu
sinni var fínt hótel í Jacmel“.
Jenný Brynjarsdóttir, kona Hall-
dórs, sagðist hafa fengið tölvupóst
frá skipuleggjendum ferðarinnar
snemma í gær um að allir úr hópn-
um væru heilir á húfi. „Ástandið
á hótelinu var betra en fyrst var
talið og mér skilst þau hafi gist þar
í nótt [í fyrrinótt],“ sagði Jenný í
gærkvöld. Hún sagði þá að ekk-
ert hefði heyrst til hópsins síðan
og ekki heyrðist meira frá Hall-
dóri áður en blaðið fór í prentun
í gærkvöld.
Jenný sagði að hún ætti von á
fólkinu heim til Bandaríkjanna en
það gæti tekið tíma. - pg
Íslenskur guðfræðinemi gisti á hóteli sem skemmdist í skjálftanum á Haítí:
„Þar sem einu sinni var fínt hótel …“
HALLDÓR ELÍAS GUÐMUNDS-
SON Lét konu sína vita af sér
strax eftir skjálftann en síðan
hefur ekkert til hans
spurst.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Íbúar: Um 9 milljónir
Höfuðborg: Port-au-Prince
Forseti: René Préval
Forsætisráðherra: Jean-Max
Bellerive
Sjálfstæði: 1804, áður frönsk
nýlenda
Tungumál: Blendingsmál og
franska, bæði opinber
Þjóðartekjur á mann: Um 100
þúsund krónur á ári
EITT FÁTÆKASTA
RÍKI HEIMS
Borgar þú öðrum fyrir að farga
þínu jólatré?
Já 3,3%
Nei 96,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Keyptir þú raftæki í desember?
Segðu þína skoðun á visir.is.
Rauði kross Íslands hóf í gær
símasöfnun vegna jarðskjálftanna.
Opnað var fyrir símanúmerið 904-
1500 en þegar hringt er í númerið
dragast 1.500 krónur frá næsta
símreikningi.
Í tilkynningu frá Rauða krossin-
um kemur fram að sjálfboðaliðar
hafi unnið sleitulaust að björgun
og við umönnun slasaðra á ham-
farasvæðinu frá því í gær.
Rauði krosinn á Haítí hefur
áralanga reynslu af neyðarvið-
brögðum enda hafa fellibyljir
valdið miklum usla á eyjunni
undanfarinn áratug.
- óká
OPNAÐ FYRIR
SÍMASÖFNUN
EFTIR JARÐSKJÁLFTANN Götur höfuðborgarinnar Port-au-Prince voru ekki auðveldar yfirferðar í gær. NORDICPHOTOS/AFP
FORSETAHÖLLIN ÓNÝT Flestar helstu byggingar höfuðborgarinnar voru rústir einar
eftir hamfarirnar á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN