Fréttablaðið - 14.01.2010, Side 24
Rio de Janeiro er vaxandi tískuborg
og á tískuvikuna sækja æ fleiri
þungavigtarmenn og -konur í
tískubransanum.
Á tískuvikuna mættu bæði
brasilískir og alþjóðlegir tísku-
hönnuðir sem sýndu hvað þeir
hafa upp á að bjóða fyrir
haustið og veturinn 2010.
Athygli vakti að ýmis konar
höfuðföt, frá kúrekahöttum
til furðulegra skúlptúra voru
fjölmörgum tískuhönnuðum
hugleikin á sýningunni.
solveig@frettabladid.is
Hattar og höfuðföt
í Ríó
GEORGIA MAY JAGGER LÆTUR AÐ SÉR
KVEÐA Í TÍSKUHEIMINUM.
Hin átján ára Georgia May Jagger,
dóttir þeirra Jerry Hall og Micks Jagg-
er, söngvara Rolling Stones, er ótví-
rætt stjarna á uppleið. Hún sat fyrir á
sinni fyrstu Vogue-forsíðu í nóvem-
ber í fyrra og var kjörin fyrirsæta árs-
ins á bresku tískuverðlaunahátíðinni
mánuði síðar. Nú leggur hún upp í
sína fyrstu vöruherferð með engri
annarri en Donatellu Versace.
„Hún er töff, með sterkan per-
sónuleika, fögur og full af orku auk
þess að vera
gædd sönnum
stjörnueigin-
leikunm. Ég
dái hana og
hún er ein-
mitt rétta
manneskjan
til að kynna
nýju línuna
okkar,“
sagði Don-
atella Ver-
sace þegar
samning-
urinn var
gerður
opinber. - ve
Rísandi stjarna
Þrátt fyrir ungan
aldur hefur
Georgia vakið
mikla athygli.
NORDICPHOTOS/GETTY
Acquastudio sýndi
marga flotta kjóla
og voru flestar
fyrirsæturnar með
sætar húfur á
borð við þessa.
Hitinn í Brasilíu kallar ekki beint á hlý-
legan fatnað. Þó voru ýmsar húfur, hettur
og hattar í algleymingi á tískuviku í Rio de
Janeiro í vikunni.
All sérstæð flík
frá Acquastudio.Breitt belti við fágaðan jakka og skraut-
leg húfa úr smiðju Juliönu Jabour.
Munstraður
kjóll, leðurgriffl-
ur og hattur
eftir Juliönu
Jabour.
Litrík
silkiflík
og rauður
hattur frá
Cavendish.
Kúrekahattar
voru Mariu
Bonitu Extra
hugleiknir.
GRACE KELLY var stjarna, fegurðardís og prinsessa. Hún þótti einnig smart með eindæm-
um. Nú geta þeir tískuspekúlantar sem eiga leið um London í apríl farið að hlakka til því
sýning á fötum hennar verður sett upp í safninu V&A í borginni.
teg. 42022 - mjög fallegur og
haldgóður í BCD skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950,-
teg. 42027 - virkilega þægilegur og
góður í CDE skálum á kr. 3.950,- buxur
í stíl kr. 1.950,-
Sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát
· Stórt op > auðvelt að hlaða
· Sparneytin
12 kg
Þvottavél
og þurrkari