Fréttablaðið - 26.01.2010, Síða 33

Fréttablaðið - 26.01.2010, Síða 33
ÞRIÐJUDAGUR 26. janúar 2010 17 SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@ frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. UMRÆÐAN Björn Brynjólfur Björnsson skrifar um kvikmyndagerð 35% niðurskurður á því fé sem mennta- og menningar- málaráðuneytið og fjár- málaráðuneytið hafa skuldbundið sig með samning- um til að setja í kvikmyndasjóði er langmesti niðurskurður sam- bærilegra samninga í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, þar sem niðurskurðurinn er 0% til 10%. Stefna yfirvalda er að skera mun meira niður í kvikmyndagerð en á nokkru sambærilegu sviði. Því var líst yfir þegar gengið var til niðurskurðar að ætlunin væri að dreifa byrðunum á sann- gjarnan hátt. Hér er ekki verið að því. Hér er verið að vinna óbæt- anlegan skaða á atvinnugrein sem miklu meira vit væri í að efla. Nú hefur það bæst við að stjórn- endur Ríkisútvarpsins segjast munu draga verulega úr kaupum á kvikmyndaefni sem framleitt er á Íslandi. Afleiðingarnar verða þær að framleiðsla á leiknu sjónvarps- efni, sem nýlega er hafin hérlendis mun enn dragast verulega saman og svo til útilokað verður að fram- leiða heimildarmyndir á Íslandi. Núverandi stjórnendur RÚV hafa með þessu útspili ítrekað þá stefnu að fyrirtækið eigi ekki sam- leið með íslenskri kvikmyndagerð og vöxtur hennar og viðgangur sé RÚV óviðkomandi. Útvarpsstjóri hefur lýst þessari skoðun með þeim orðum að RÚV hafi aðeins skyldum að gegna gagnvart áhorf- endum sínum og engum öðrum. Brot á þjónustusamningi Í hverri viku benda áhorfendur (með fjarstýringunni) stjórnend- um RÚV á það efni sem þeir helst vilja fá: Vandað íslenskt efni. Þess- ir sömu áhorfendur eru óvart líka eigendur fyrirtækisins, en engu að síður ætla núverandi stjórnend- ur að fara þveröfuga leið og draga sem mest úr þessu efni. Sú skoðun að RÚV hafi engum samfélagslegum skyldum að gegna sem risafyrirtæki í almannaeigu á þessu sviði mun vera óþekkt í Evr- ópu þar sem fjöldi sambærilegra ríkisrekinna sjónvarpsstöðva lítur ekki bara á það sem skyldu sína að starfa með kvikmyndaiðnaði síns lands að því að þróa og fram- leiða kvikmyndaefni sem á rætur í tungumáli og menningu þjóðar- innar – heldur gerir það með mik- illi ánægju. Slíkt samstarf hefur undan- tekningalaust getið af sér afurðir sem seljast víða um heim – og skila verð- mætum gjaldeyri. Ákvörðun stjórnenda RÚV er líka brot á þjón- ustusamningi fyrirtækis- ins við mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið, en því svara stjórnendur RÚV á þann veg að þar sem framlög til stofnun- arinnar hafa nú verið skert frá því sem segi í samningnum þurfi þeir hvorki, né geti, uppfyllt samning- inn. Það munu margir forstöðu- menn ríkisstofnana vera spennt- ir að sjá hvort ráðuneytið tekur þessa röksemdafærslu gilda. Ekki bara spurning um peninga Ríkisútvarpið er að skera niður um 270 milljónir en tekjur þess á síð- asta ári voru 4,4 milljarðar. Nú sjá stjórnendur þess enga aðra leið en að skera verulega niður þær 100 milljónir sem þeir kaupa fyrir íslenskt kvikmyndaefni. Fyrir þessa peninga fást kvikmyndir, heimildarmyndir og leikið sjón- varpsefni sem kostar milljarða að framleiða því aðeins lítill hluti kostnaðar við framleiðslu þessa efnis er greiddur af RÚV. Fram- leiðslukostnað þess efnis sem RÚV framleiðir sjálft þarf fyrirtækið hins vegar að greiða að fullu. En peningar eru ekki allt. Ef við þurfum á einhverju að halda á þessum dögum þá eru það kvik- myndir, heimildarmyndir og sjón- varpsþáttaraðir um lífið í þessu landi. Börnin okkar þurfa á því að halda. Kvikmyndir eru stór hluti af menningu okkar og tilveru og sá hlutur mun stækka. Framsýnir leiðtogar myndu efla þennan iðnað sem skapar spenn- andi störf sem ungt fólk hefur áhuga á og vinnur með tungumál okkar og menningu.Hér eru miklir möguleikar. Við eigum vel mennt- að fagfólk í öllum deildum. Eftirspurn eftir vönduðu kvik- myndaefni í veröldinni er óseðj- andi og fátt er betur til þess fallið en kvikmyndir að flytja heiminum mynd af þessu landi, fólkinu sem hér býr – og lífinu sem það lifir. Það er mynd sem við þurfum ekki að skammast okkar fyrir. En við þurfum að skammast okkar fyrir þau skemmdarverk sem nú eru unnin á íslenskri menn- ingu. Höfundur er formaður Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsaka- demíunnar. Menningarlegt skemmdarverk BJÖRN BRYNJÓLF- UR BJÖRNSSON Núverandi stjórnendur RÚV hafa með þessu útspili ítrekað þá stefnu að fyrirtækið eigi ekki samleið með íslenskri kvikmyndagerð og vöxtur hennar og viðgangur sé RÚV óviðkomandi. Auglýsingasími – Mest lesið Móttöku auglýsinga og skráninga í Símaskrána 2010 fer senn að ljúka. Ef þú vilt breyta skráningu þinni eða fyrirtækis þíns hafðu þá samband við þjónustufulltrúa okkar í síma 522 3200, farðu inn á Já.is eða sendu tölvupóst á ja@ja.is. Þú ert ekkert númer ef þú ert ekki í Símaskránni

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.